Rúmlega 200 byggingar í Evrópu klæddar bláum lit Sameinuðu þjóðanna Heimsljós 23. október 2020 11:53 unric Rúmlega tvö hundruð byggingar um alla Evrópu verða lýstar upp með bláum lit á morgun, laugardaginn 24. október, til að minnast 75 ára afmælis Sameinuðu þjóðanna. UNRIC, upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna fyrir Vestur-Evrópu, á frumkvæðið að átakinu „Turn Europe UN Blue“ en á morgun verða 75 ár liðin frá því stofnsáttmáli samtakanna gekk formlega í gildi árið 1945. Að sögn Árna Snævarr upplýsingafulltrúa Sameinuðu þjóðanna hjá UNRIC verða Harpa, Háskóli Íslands, Höfði, Dómkirkjan í Reykjavík og Akureyrarkirkja lýst bláa litnum á morgun. „Sama gildir um brúna yfir Eyrarsund, dómkirkjuna í Stokkhólmi, Ráðhúsið og FN-byen í Kaupmannahöfn og háskólann í Tromsö svo dæmi séu tekin frá Norðurlöndum. Þá má nefna helstu byggingar Evrópusambandsins í Brussel, Þjóðahöllinna í Genf og Friðarhöllina í Haag, ráðhús Madridar og Bonn, Belem-turn í Lissabon, Stormont kastala í Belfast, Dyflinnarkastala og dómshús Lyon,“ segir Árni. Að sögn Árna hefur ljósblái liturinn verið einkennislitur Sameinuðu þjóðanna frá því allsherjarþingið lagði blessun sína yfir fána samtakanna 20. október 1947. Blár varð fyrir valinu sem „andstæðan við rauðan, lit átaka,” segir hann. Michel Pastoureau, höfundur bókarinnar Blár – saga litar (Bleu – Histoire d’une couleur) segir að blái liturinn sé yfirleitt tengdur samhljóm og friði, sem er kjarni starfs Sameinuðu þjóðanna. „Að varpa bláa litnum á byggingar og mannvirki er táknræn aðgerð og stuðningur við grundvallarhugsjónir Sameinuðu þjóðanna um frið, sjálfbæra þróun, mannréttindi og fjölþjóðlega samvinnu á óvissum tímum,“ segir Árni. Að mati António Guterres aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna stendur heimurinn andspænis tröllauknum áskorunum. „Við getum sigrast á þeim með samstöðu og samvinnu um allan heim. Um það snúast Sameinuðu þjóðirnar. Á þessu afmæli bið ég fólk hvarvetna um að taka höndum saman. Sameinuðu þjóðirnar standa ekki aðeins með ykkur. Þær tilheyra ykkur og þær eru þið samanber fyrstu orð stofnsáttmálans: „Vér hinar Sameinuðu þjóðir.“ „Sjötíu og fimm ára afmælið ber upp á tíma mikilla sviptinga i heiminum. Heimsfaraldri COVID-19 hafa fylgt alvarlegar félagslegar- og efnahagslegar afleiðingar. En um leið minnir ástandið á að á erfiðum tímum er hægt að sá frækornum jákvæðra breytinga. Með því að gera Evrópu bláa staðfestum við slík fyrirheit,“ segir Árni Snævarr. #EuropeTurnsUNBlue #UN75 Könnun Sameinuðu þjóðanna meðal almennings í tilefni afmælisins Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Sameinuðu þjóðirnar Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Sameinuðu þjóðirnar Mest lesið Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Innlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent