Sam­einuðu þjóðirnar

Sam­einuðu þjóðirnar

Fréttir af Sameinuðu þjóðunum.

Fréttamynd

Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi

Eiginmaður minn fór á pöbbinn nýverið til að horfa á fótboltaleik. Svo að hann sæi á sjónvarpsskjáinn þurfti hann að horfa til hliðar allt kvöldið. Liðið hans vann. Hann hefur hins vegar ekki getað snúið höfðinu fram síðan.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Harðari tónn en áður hafi verið sleginn

Ræða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þar sem hún beindi spjótum sínum að Benjamín Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hefur vakið mikla athygli. Stjórnmálafræðingur segir ræðuna í takti við íslenska utanríkisstefnu, þó í henni megi finna harðari tón en áður hafi verið sleginn.

Innlent
Fréttamynd

Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra skaut föstum skotum að leiðtogum sem virða alþjóðalög að vettugi í ávarpi Íslands á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Hún beindi orðum sínum jafnframt sérstaklega að Benjamín Netanjahú og ummælum hans um „siðferðislega hugleysingja“ og sagði þá nafnbót frekar eiga við leiðtoga sem neita að semja um frið, hindra mannúðaraðstoð og gera lítið úr alþjóðalögum.

Innlent
Fréttamynd

Bað Trump um „vetrarpakka“

Vólódímír Selenskí bað Donald Trump um „vetrarpakka“ af hernaðaraðstoð og þá sérstaklega um flugskeyti í Patriot-loftvarnarkerfi, til að verjast skotflaugaárásum Rússa. Hann segir einnig að Bandaríkjamenn séu líklegir til að reyna að koma á vopnahléi sem snýr sérstaklega að orkuinnviðum í bæði Úkraínu og Rússlandi.

Erlent
Fréttamynd

Segir stóra á­kvörðun fram­undan

Donald Trump forseti Bandaríkjanna hótaði í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær að afmá klerkastjórnina í Íran ef átökin leystust ekki. Samskipti áttu sér stað á milli fulltrúa landanna á þinginu í gær.

Erlent
Fréttamynd

Svona var ræða Trumps: Spurning um „ger­eyðingu“ og nýtt nafn á gervi­greind

Donald Trump Bandaríkjaforseti fór um víðan völl eins og hans er von og vísa í árlegri ræðu hans frammi fyrir Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York. Hann segist standa frammi fyrir mikilli ákvörðun hvað varðar Íran, að gera samning við þarlend stjórnvöld eða eyða íslamska lýðveldinu. Þá gekk sendinefnd Kúbu út úr salnum og forsetinn sagði Bandaríkjamenn bera höfuð og herðar yfir Kína þegar kemur að gervigreind, sem hann nefndi nýju nafni.

Erlent
Fréttamynd

Þokast æ fjær lofts­lags­skuld­bindingum Ís­lands

Þrátt fyrir að losun á gróðurhúsalofttegundum hafi dregist saman í fyrra er útlit fyrir að árangurinn á þessum áratug verði aðeins rétt rúmur helmingur þess sem Ísland er skuldbundið til þess að ná. Markið heldur áfram að fjarlægjast í nýrri spá Umhverfis- og orkustofnunar um hvernig losun mun þróast næstu árin.

Innlent
Fréttamynd

Hags­munir Ís­lands að efla Sam­einuðu þjóðirnar

Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, segir Ísland leggja áherslu á að tala fyrir friði og virðingu fyrir alþjóðalögum á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem stendur nú yfir í New York. Það séu hagsmunir Íslands og heimsins alls að efla Sameinuðu þjóðirnar og tryggja fullveldisrétt allra ríkja.

Innlent
Fréttamynd

Stefna að tveimur nýjum her­stöðvum á Græn­landi

Bandaríkjamenn, Grænlendingar og Danir munu í dag skrifa undir samning um varnarmál á Grænlandi en undirritunin fer fram í New York. Samkvæmt danska ríkisútvarpinu hyggjast Bandaríkjamenn reisa tvær nýjar herstöðvar á Grænlandi.

Erlent
Fréttamynd

Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlut­föllum

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna mun greiða atkvæði í dag um ályktun sem felur í sér að fólk hætti formlega að nota hið hefðbundna Mercator-kort af jörðinni og taki þess í stað upp kort sem sýnir stærð Afríku með nákvæmari hætti.

Erlent
Fréttamynd

Út­séð um að mark­mið Parísar­sam­komu­lagsins náist

Ekki er lengur mögulegt að koma í veg fyrir að hlýnun jarðar verði umfram eina og hálfa gráðu og líklegt er að farið verði fram yfir þau mörk á næstu árum. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja brýnt að mannkynið komi í veg fyrir enn meiri hlýnun og reyni síðar að vinda ofan af þeirri sem þegar hefur átt sér stað.

Erlent
Fréttamynd

Fagnað á götum Kabúl

Ríkisstjórn Talíbana í Afganistan fagnaði því í dag að fimm ár eru liðin frá því að höfuðborg landsins, Kabúl, var hertekin. Brynvarðir bílar skreyttir fánum keyrðu um stræti og fulltrúar ríkisstjórnarinnar tjáðu sig fjálglega um árangur hennar.

Erlent
Fréttamynd

Stríðs­fangar barðir og beittir kyn­ferðis­legu of­beldi

Rússar halda enn í það minnsta sextán þúsund úkraínskum borgurum föngnum og er mörgum þeirra haldið við aðstæður sem fara gegn alþjóðasamþykktum. Pyntingar og kynferðislegt ofbeldi er sagt kerfisbundið, bæði gegn úkraínskum borgurum og stríðsföngum.

Erlent
Fréttamynd

„Veiddu“ grænmetissala með dróna

Rússneskir hermenn eltu á dögunum óbreyttan borgara með sjálfsprengidróna og reyndu að sprengja hann í loft upp. Maðurinn var að setja upp sölubás fyrir grænmeti í Kherson í suðurhluta Úkraínu þegar drónaárásin var gerð. Maðurinn lifði af en forseti Úkraínu segir þetta enn eina sönnun þess að Rússar hafi misst vitið og að rússneskir hermenn njóti þess að „veiða“ óbreytta borgara, drepa þá og misþyrma þeim.

Erlent
Fréttamynd

Vill að Infantino stýri Sam­einuðu þjóðunum

Donald Trump vill að Gianni Infantino, forseti FIFA, verði næsti framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Forsetarnir tveir eru góðir vinir og er Trump sagður sannfærður um að Infantino njóti mikillar virðingar um heiminn allan. Trump mun þar að auki telja að Infantino hafi sérstakan hæfileika í því að skapa samstöðu.

Erlent
Fréttamynd

Hand­takan þyrfti að byggja á al­þjóða­lögum

Hvorki utanríkisráðherrar Íslands né Frakklands svöruðu því beint hvort þau myndu styðja hugsanlega handtöku Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, þegar hann kæmi til New York í september. Utanríkisráðherra Íslands segir að allar slíkar aðgerðir þurfi að vera samkvæmt alþjóðalögum.

Erlent
Fréttamynd

Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stór­slysi

Yfir 300 börn hafa farist eða særst í stríðinu í Súdan á síðustu sex mánuðum, flest vegna drónaárása. Þetta segir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) en súdanski herinn og vígasveitirnar Rapid Support Forces (RSF) hafa barist í landinu frá því í apríl 2023. Átökin eru talin hafa kostað minnst 59 þúsund manns lífið.

Erlent
Fréttamynd

„Konur eru svangari, fá­tækari og ör­væntingar­fyllri en nokkru sinni fyrr“

Stríðið í Súdan hefur leitt til verstu mannúðar- og flóttamannakrísu í heiminum fyrir konur og stúlkur, samkvæmt nýlegri skýrslum UN Women. Átökin á milli stjórnarhers Súdans og RSF-uppreisnarhersins hafa nú staðið yfir í þrjú ár og ná til fjölda héraða, þar með talið Darfúr og Kordófan. Svæðisstjóri UN Women í Súdan, Salvator Nkurunziza, segir nóg komið og að stríðinu verði að ljúka. 

Erlent