Nissan Juke fagnar tíu ára afmæli Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 26. október 2020 07:00 Nissan Juke í nýjustu útgáfunni.
Tíu ár eru liðin síðan fyrsta kynslóð jepplingsins Nissan Juke kom á markað. Ytri og innri hönnun Juke þótti afar byltingarkennd í upphafi og þótti sumum hún full djörf. Sem dæmi má nefna að á bílasýningunni í Genf 2009 trúðu raunar fæstir bílablaðamenn því að Nissan myndi markaðssetja bíl á borð við hugmyndabílinn Qazana Concept sem gaf mjög ákveðin fyrirheit um það hvernig endanlegur bíll myndi líta út við markaðssetningu segir í fréttatilkynningu frá BL vegna afmælisins. Tortryggnin reyndist ástæðulaus því reynslan sýnir að afgerandi útlit Juke féll í kramið hjá stórum hópi kaupenda og hefur meira en ein og hálf milljón eintaka verið framleidd fyrir alþjóðamarkað á undanförnum tíu árum, þar af fjörutíu þúsund sl. tólf mánuði. Árið 2010 var enginn nýr fólksbíll í verðflokki Juke í boði á markaðnum sem endurspeglaði jafn afgerandi hönnun, en með henni vildi Nissan einkum höfða til orku, útiveru og hreyfingar virkra neytenda sem velja helst bíl sem endurspegla eigin smekk og áhugamál. Með árunum hefur útlitshönnunin tekið breytingum ásamt öryggis- og þægindabúnaði í samræmi við breyttar áherslur og kröfur viðskiptavina þótt meginútlitseinkenni jepplingsins hafi haldist alla tíð. Á sama tíma hafa aðrir helstu bílaframleiðendur teflt fram verðugum keppinautum í samkeppninni við Juke sem þó hefur haldið sínum hlut á þessum tiltekna markaði.
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent