Innlent

Á­hyggjur af því að brott­fall úr fram­halds­skólum verði mikið vegna van­líðunar ung­menna

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Ungmenni hafa í auknu mæli leitað til Bergsins vegna vanlíðan og kvíða. Það sé sérstaklega vegna félagslegrar einangrunar og álags í skóla.
Ungmenni hafa í auknu mæli leitað til Bergsins vegna vanlíðan og kvíða. Það sé sérstaklega vegna félagslegrar einangrunar og álags í skóla. Vísir/Vilhelm

Framkvæmdastjóri Bergsins, stuðnings- og ráðgjafaseturs, segir líðan ungmenna nú á tímum Covid mikið áhyggjuefni. Þriðja bylgja faraldursins hafi hrikaleg áhrif á ungt fólk og aðsókn í Bergið hafi stóraukist.

„Þeim líður ekki nógu vel. Þau upplifa depurð, þyngsli og kvíða og þau eru þung og þeim líður ekki alveg nógu vel. Þau upplifa að þau ráði ekki alveg við skólann og allar þær kröfur sem á þau eru gerðar,“ segir Sigurþóra Bergsdóttir framkvæmdastjóri Bergsins í samtali við Vísi.

Sigurþóra birti í dag færslu á Facebook þar sem hún skrifaði um vanlíðan ungmenna. Hún óttist að brottfall úr framhaldsskólum verði stórfellt nú fyrir jól, ungmennin séu einfaldlega að gefast upp fyrir verkefninu.

„Þetta á bæði við um þau sem eru í framhaldsskóla en líka þau sem eru að byrja í háskóla. Þetta fjarnám og þetta að vera alltaf heima það er bara íþyngjandi,“ segir Sigurþóra.

Sigurþóra Bergsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Bergsins.Bergið

„Þau þoldu þetta alveg í vor, þá var þetta bara tímabundið. En núna er vonleysið að aukast og sérstaklega líka vegna þess að skólarnir hafa ákveðið að draga ekkert úr kröfum heldur og þau upplifa að þau ráði ekki alveg við námið. Þau séu bara að missa af lestinni og missa sjálfstraustið í námi.“

Félagsleg einangrun mikið áhyggjuefni

Hún segir í Facebook-færslunni að vanlíðanina megi rekja helst til tveggja þátta. Annars vegar félagslegrar einangrunar og hins vegar vegna þess að kröfur í námi hafi ekki verið lækkaðar.

„Að fá ekki að hitta félagana, að hafa ekkert félagslegt að hlakka til. Það er verið að taka svo mikið frá þessum ungmennum núna,“ skrifar hún.

„Þú kannski þekkir fáa í þínum skóla og nú eru engin böll, ekkert félagsstarf, engin félagsleg tengsl og bara að læra heima í gegnum tölvu með öðrum sem þú þekkir ekkert.“

Nemendur í bæði framhaldsskólum og háskólum finna fyrir mikilli vanlíðan og álagi vegna faraldursins.Vísir/Vilhelm

Hún segir mikilvægt að framhaldsskólarnir bregðist við, til dæmis með því að opna skólana, bjóða upp á þriggja til fimm manna námshópa, bjóða upp á stuðning á staðnum meðal annars með því að leyfa krökkum að hitta námsráðgjafann í persónu en ekki bara í gegn um síma.

„Þetta er að buga þau. Þau þurfa að læra svo mikið allan daginn, það virkar meira þar sem þau eru að gera þetta mest í sjálfsnámi, þó einhverjar kennslustundir séu í gegnum netið,“ skrifar Sigurþóra.

„Þriggja ára framhaldsskólinn er ekki að vinna með okkur þarna, kannski þurfum við að skoða hvort þessi hópur fái ekki bara lengri tíma í verkefni. Eitthvað þarf að gera í haust og vor til að koma til móts við þennan hóp, því ef við missum þau út úr skólunum verður vandinn mun erfiðari við að eiga.“

Þriðja bylgjan er að hafa hrikaleg áhrif á unga fólkið okkar. Við finnum fyrir stóraukinni aðsókn í Bergið og ungmennum...

Posted by Sigurþóra Bergsdóttir on Thursday, November 5, 2020

Tengdar fréttir

Skólar verða opnir en með takmörkunum

Menntarmálaráðherra segir að skólar verði áfram opnir en með takmörkunum eftir að sóttvarnareglur vegna kórónuveirufaraldursins verða hertar á miðnætti. Takmarkanir á skólastarfi verða kynntar um helgina og taka gildi í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×