Peningarnir liggja á götunni, tínum þá upp Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar 10. nóvember 2020 11:30 Baráttan gegn spillingu verður að vera ofarlega í forgangsröðun okkar. Fjöldi hneykslismála, til að mynda hinn svokallaði FinCen-leki í september, hafa sýnt að baráttu okkar á innlendum og alþjóðlegum vettvangi er enn ábótavant. Alþjóðabankinn áætlar að hagnaðurinn af skipulagðri glæpastarfsemi og mútugreiðslum hlaupi á meira en tvö þúsund milljörðum Bandaríkjadala árlega. Löggæslustofnunum tekst hins vegar aðeins að gera brotabrot af fjármagninu upptækt á hverju ári (áætlað 1% fjármagnsins er gert upptækt árlega). Þær gríðarháu upphæðir sem eftir standa safnast á hendur skipulagðra glæpasamtaka, spilltra embættismanna og hryðjuverkasamtaka og skapa ógn við lýðræðið, réttarríkið og þjóðaröryggi ríkja heims. Í þessari vondu stöðu eru þó fólgin stór tækifæri. Takist ríkjum að gera stærri hluta peningana upptækan mætti nýta fjárhæðina til að ráðast gegn afleiðingum skipulagðrar glæpastarfsemi, spillingar og hryðjuverka, öllum samfélögum til hagsbóta. Stuðningur við rakningu og upptöku þessara fjármuna er því ekki aðeins brýnn heldur að líkindum gríðarlega ábatasamur. Samþykkt samhljóða Af þessum sökum var mér falið það verkefni, fyrir hönd laga- og mannréttindanefndar Evrópuráðsþingsins, að skrifa skýrslu þar sem lagðar eru til úrbætur í þessum málum. Ég mælti fyrir skýrslunni í gær og var hún samhljóða samþykkt af hálfu nefndarinnar. Skýrslan byggir á ráðleggingum fjölda sérfræðinga sem komu á fund nefndarinnar í október og fundum mínum með fulltrúum Greco og Moneyval. Niðurstöður þeirrar vinnu er að varnir Evrópuráðsríkja gegn peningaþvætti eru víða veikar og peningaþvættisskrifstofur (e. Financial Intelligence Units) skortir valdheimildir til að taka betur á málunum. Til þess að bæta úr þessu lagði ég m.a. til í skýrslunni: Að styrkja peningaþvættisskrifstofur aðildarríkjanna í samræmi við tillögur FATF og Moneyval og veita þeim næga fjármuni og mannafla til að rekja og uppræta peningaþvætti. Standa vörð um sjálfstæði peningaþvættisskrifstofa og auðvelda samstarf þeirra þvert á landamæri. Veita peningaþvættisskrifstofum heimild til að frysta grunsamlegar millifærslur tímabundið, einnig að beiðni erlendra samstarfsaðila, í samræmi við 14. og 47. grein Varsjársáttmálans. Hvetja til samtals og samstarfs milli einkageirans og hins opinbera til að tryggja gæði skýrslna um grunsamlegt athæfi (e. Suspicious Transaction Reports) Snúa sönnunarbyrðinni þegar kemur að lögmæti fjármagns þannig að sá sem fer með það þurfi að færa sönnur á löglegan uppruna þess. Pólitískur vilji stærsta hindrunin Sem fyrr segir voru tillögurnar samhljóða samþykktar í nefndinni í gærmorgun. Það þýðir að þær verða lagðar fyrir Evrópuráðsþingið og, í ljósi samstöðu nefndarinnar, eru yfirgnæfandi líkur á því að þingið samþykki tilmæli hennar að úrbótum fyrir öll 47 aðildarríki Evrópuráðsins - Ísland þar með talið. Daniel Thelesklaf, fyrrverandi formaður Moneyval og svissnesku fjárþvættisskrifstofunnar (MROS), hefur bent á fjölda brotalama í þessum málum. Það skorti t.a.m. fjármagn og mannafla til að takast á við mál sem verða sífellt flóknari og viðameiri. Stærsta hindrunin að hans mati er hins vegar skortur á vilja stjórnmálamanna til að taka á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka af festu. Til mikils að vinna Ísland er engin undantekning í þessum efnum eins og nýleg svaðilför okkar á gráum lista FATF ber greinileg merki. Áralöng vanræksla stjórnvalda gagnvart viðunandi vörnum gegn peningaþvætti, þrátt fyrir ítrekaðar aðvaranir FATF um nauðsynlegar úrbætur, er lýsandi fyrir algeran skort á pólitískum vilja til þess að varna peningaþvætti í íslenskri lögsögu. Þá hef ég ekki, þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir, fengið það staðfest að til standi að bæta upp fyrir áralangt eftirlitsleysi með mögulegum skattsvikum og peningaþvætti með afturvirkum rannsóknum. Það er ekki til einskis að vinna. Samkvæmt skýrslu fjármálaráðherra um eignir Íslendinga á aflandssvæðum er uppsafnað umfang eigna Íslendinga á aflandssvæðum frá árinu 1990 til 2015 einhvers staðar á bilinu 350 til 810 milljarðar króna. Tekjutap hins opinbera á árunum 2006 til 2014 nemur líklega um 56 milljörðum króna og á hverju ári gæti tapið vegna vantalinna skatta verið á bilinu 4,6 til 15,5 milljarðar króna. Hér er ótalinn hagnaður af ólöglegri starfsemi og ólögmætt fjármagn frá útlöndum sem hefur auðveldlega getað flætt í gegnum íslenska lögsögu á eftirlitslausu árunum. Vonandi er fjárhagslegi hvatinn sem felst í því að gera stærri hluta þessara gríðarlegu fjármuna upptækan til þess fallinn að auka pólitískan stuðning við baráttuna, jafnt hér á landi og annars staðar. En við hljótum að spyrja hvers vegna erum við að bíða og eftir hverju? Ég segi bara eins og fyrrverandi samstarfsmaður minn, hollenski þingmaðurinn Mart van de Ven: Peningarnir liggja á götunni, tínum þá upp! Höfundur er þingmaður Pírata. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Píratar Skoðun: Kosningar 2021 Mest lesið Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir skrifar Skoðun Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun 25,2% árangur Gísli Garðarsson skrifar Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum með blaðamönnum Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar Skoðun Þess vegna segjum við NEI þann 29. ágúst Þorvaldur Þorvaldsson skrifar Skoðun Ég kýs JÁ ! - Hvers vegna? skrifar Skoðun Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar
Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar