Skipverjar Júlíusar Geirmundssonar segjast ekki hafa verið neyddir til að vinna á meðan þeir voru veikir af kórónuveirunni um borð. Þeir hafi hins vegar ekki haft samvisku í að liggja lengi í koju á meðan vaktin var undirmönnuð. Þetta kom fram í sjóprófum við Héraðsdóm Vestfjarða í dag en við segjum frá þeim í kvöldfréttum okkar klukkan 18:30 á Stöð 2, Bylgjunni og Vísi.
Þá fjöllum við um nýtt bóluefni gegn kórónuveirunni en Íslendingar hafa þegar tryggt sér skammta af því fyrir um þriðjung þjóðarinnar.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur aldrei fengið eins margar tilkynningar um heimilisofbeldi og í ár en þær eru nú orðnar tæplega sjö hundruð talsins. Við ræðum við rannsóknarlögreglumann um aukninguna.
Þá ræðum við einnig við þingmann sem leggur til að hámarkshraði í þéttbýli verði lækkaður niður í 30 kílómetra á klukkustund.