En flest öll eldumst við og því eru aldursfordómar sem eru allra hagur að séu ekki til staðar. Því hvern langar að upplifa þessa fordóma þegar líður að síðustu árum í starfi?
Hér eru nokkur dæmi um einkenni aldursfordóma:
- Kennsla á nýjungum, breyttum verkferlum, tækni og fleira er frekar úthlutað eða beint til yngri starfsfólks en eldri
- Nýjum verkefnum er síður úthlutað til eldri starfsmanna
- Eldri starfsmenn eru skildir út undan
- Öðruvísi kröfur um frí, þ.e. þeir sem eiga uppkomin börn eiga sjálfkrafa að dekka sumarfrístímann í vinnu þegar yngra starfsfólk þarf að vera heima vegna barna
- Aldurstengt grín sem fólk áttar sig ekki á að geta sært
- Eldra starfsfólk fær síður stöðuhækkun eða launahækkun
Ráð til stjórnenda
Ekki gera ráð fyrir að aldursfordómar séu ekki til staðar á þínum vinnustað.
Stjórnendur þurfa að byrja á því að velta fyrir sér sínu eigin viðhorfi eða hegðunarmynstri gagnvart starfsfólki á mismunandi aldri. Hvað er öðruvísi?

Ráð fyrir eldri starfsmenn
- Vertu óhrædd/ur við að læra eitthvað nýtt og biðja um hjálp. Ein sniðug leið getur verið að fá einn af yngri starfsmönnunum til að vera mentorinn þinn. Útkoman getur verið skemmtileg og góð
- Afsannaðu mýtur um að eldra starfsfólk með því að vera jákvæð/ur gagnvart nýjungum, s.s. nýjum verkefnum, að læra eitthvað nýtt, taka þátt í félagsskap og fleira
- Dragðu úr sögum frá því í „gamla daga.“ Þú þarft ekki að hætta að segja þær en ef þú minnist gamalla tíma mjög oft ertu í raun sjálf/ur að draga fram aldurinn þinn (en vilt draga úr aldursfordómum)
- Haltu áfram að reyna að gera betur. Þetta er einkenni ungs fólks á framabraut og ekkert sem segir að þú eigir að slá af þessari kröfu þótt árafjöldinn sé farinn að telja
- Haltu áfram að vera með augun opin fyrir nýjum tækifærum. Innan sem utan vinnustaðarins. Þetta á einnig við um að virkja þig í félagslegum tengslum og tengslaneti.
Ráð fyrir allt starfsfólk
Er tilefni til aðgerða?
Ef þú telur ástæðu til að vinnustaðurinn þinn grípi til aðgerða, skaltu skrá niður dæmi (dagsetningar, atburðir, setningar osfrv.) sem þér finnst lýsandi aldursfordómar á þínum vinnustað.
Leitaðu síðan til stjórnenda eða mannauðsstjóra og óskaðu eftir því að málefnið verði rætt og það skoðað.