„Oft koma konur hingað úr heimilisleysi, þær eru að koma úr erfiðum aðstæðum og ég þrái svo að geta búið þeim lítið sætt hreiður og umhverfi sem þær geta verið í,“ útskýrir Helga Lind.
Draumur að fá setustofu
Í Hlaðgerðarkoti dvelja að jafnaði um 30 einstaklingar í einu í áfengis- og vímuefnameðferð á vegum Samhjálpar og í allt að þrjá mánuði í senn og jafnvel lengur.
Húsgögnin í kvennaálmunni voru orðin þreytt og slitin, gólfefni illa farin og veggirnir þurftu nauðsynlega á smá málningu að halda.

„Það vantaði að taka utan um rýmin og gera þau meira kósý fyrir heimilisfólkið þannig að þeim liði betur,“ segir Soffía um þetta verkefni.
„Okkur langar svo ofboðslega að útbúa setustofu fyrir þær,“ var ósk Helgu Lindar áður en Soffía hófst handa. Það var því ákveðið að breyta einu svefnherbergi í setustofu.
Soffía Dögg ákvað að fá samstarfsaðila sína í þetta dýrmæta verkefni og var útkoman ótrúlega vel heppnuð. Þáttinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.
Verðugt málefni
„Í Hlaðgerðarkoti er unnið með einstaklinga sem eiga við fíknivanda að stríða. Í Hlaðgerðarkoti starfar þverfaglegt teymi, læknis, hjúkrunarfræðings, félagsráðgjafa og áfengis- og fíkniráðgjafa ásamt því sem umsjónarmenn eru við störf allan sólahringinn og eru til stuðnings þeim sem eru í meðferð. Í Hlaðgerðarkoti er lögð áhersla á heimilislegt og hlýlegt viðmót og er virðing fyrir einstaklingnum höfð að leiðarljósi,“ segir um starfið.
„Félagasamtök eins og Samhjálp eru mjög háð svona óvæntu inngripi, styrkjum. Stór hluti af okkar rekstri er fjármagnaður með sjálfsaflafé,“ segir Valdimar Þ. Svavarsson framkvæmdastjóri Samhjálpar. „Það er óhætt að segja að kvennaálman þar sem konurnar gista, hún er orðin lúin.“

Soffía Dögg fékk það verkefni að taka í gegn tvö svefnherbergi og breyta öðru þeirra í setustofu. Einnig vildi hún fríska upp á ganginn í kvennaálmunni og gera hann hlýlegri.
„Þetta er þarft og verðugt málefni og mér finnst æðislegt að við getum lagt ykkur lið,“ segir Soffía.

Allt út nema rúmin
„Þegar upp var staðið þá voru eiginlega bara rúmin eitthvað sem þau vildu eftir, rúmin voru tiltölulega ný þannig að við þurftum að redda öllu hinu.“
Fyrsta skrefið var að rífa dúk og slitið parket af gólfum og svo þurfti að mála veggina. Soffía valdi liti úr Skreytum hús litakortinu sínu og urðu litirnir Værð og Ylja fyrir valinu. Í svefnherberginu notaði hún vegghillur til að setja heimilislegan brag á rýmið. Rúmteppi, púðar og gardínur búa til kósý og hlýlega stemningu. Borðið er svo bæði hægt að nota sem snyrtiborð og skrifborð.

Á ganginn notaði Soffía gardínur og seríu til að fá mýkt. Hún bendir á að á gangi þurfi að finna hluti til að skreyta sem séu samt ekki fyrir þeim sem nota ganginn.

Í setustofuna setti Soffía sófa og einnig borðstofuborð og stóla svo rýmið er hægt að nýta í margt. Hliðarborðið kemur svo einstaklega vel út fyrir kaffiaðstöðuna. Ljósa parketið og nýmáluðu veggirnir stækka rýmið mjög mikið. Einnig blekkir augað að setja gardínurnar nær loftinu og á allan vegginn.

„Þetta á eiginlega ekki að vera hægt“
Breytingin á rýmunum þremur var mjög mikil og létu viðbrögðin ekki á sér standa.
„Ertu ekki að djóka?“ var það fyrsta sem Valdimar sagði eftir að Soffía hleypti þeim aftur inn í kvennaálmuna eftir breytingarnar.
„Þetta er svakalegt.“
Helga Lind var hálf orðlaus yfir öllu saman, en brosið fór ekki af henni.
„Þetta er eiginlega ótrúlegt, þetta á eiginlega ekki að vera hægt.“
Í ítarlegri bloggfærslu á síðunni Skreytum hús má finna frekari upplýsingar um breytingarnar og þær vörur sem Soffía Dögg notaði til þess að breyta rýminu.

Hægt er að sjá breytinguna og horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni. Þættirnir eru sýndir á þriðjudögum hér á Vísi og fara samhliða því inn á Stöð 2 Maraþon.