Sniðug jólagjöf fyrir veiðimenn, göngufólk og golfara Karl Lúðvíksson skrifar 8. desember 2020 08:25 Veiðistaða veggspjalið er skemmtileg gjöf fyrir veiðimanninn Það er oft erfitt að kaupa veiðigjafir fyrir veiðimenn sem allt eiga og þess vegna verða vinir og vandamenn veiðimanna og veiðikvenna mjög þakklát þegar ábendingar um sniðugar jólagjafir fyrir þennan hóp koma fram.
Það er oft erfitt að kaupa veiðigjafir fyrir veiðimenn sem allt eiga og þess vegna verða vinir og vandamenn veiðimanna og veiðikvenna mjög þakklát þegar ábendingar um sniðugar jólagjafir fyrir þennan hóp koma fram. Eitt af því sniðuga sem hefur komið fram í jólagjafahugmyndum eru veggspjöld sem hafa verið hönnuð fyrir veiðimenn, göngufólk og golfara. En þetta eru engin hefðbundin veggspjöld. Fyrirtækið Vegglist var stofnað á haustmánuðum af tveim æskuvinum sem hafa verið með hugmyndina í nokkur ár. Þetta er þrælsniðug hugmynd en á veggspjaldinu, til dæmis þessu fyrir veiðimenn, er fullt af ár- og vatnasvæðum sem eru undir filmu, ekkert ósvipað skafmiða. Þegar veiðimaðurinn er búinn að veiða ákveðið svæði getur hann tekið filmuna af og þá sést mynd af viðkomandi veiðisvæði. Sama pæling er á bak við veggspjaldið fyrir golfarann og göngugarpinn. Júlíus og Gunnsteinn hönnuðu veggspjöldin og reka fyrirtækið Vegglist 63 teikningar eru á hverri veggmynd af vinsælustu veiðisvæðum, golfvöllum, gönguleiðum, með latex silfur filmu yfir sem er þurrkuð af með bómul og leysiefni til minningar um unnin afrek og áminningar um órannsakaðar slóðir. Eftir stendur að veiðimaðurinn sér þá hvaða svæði eru eftir og þarna er áskorun á veggnum, ná af prófa öll svæðin. Veggspjöldin fást í versluninni Hrím og á heimasíðu Vegglistar. Dagana 8. - 15.des fá lesendur Veiðivísis afslátt af veggmyndunum með því að nota afsláttarkóðann veidivisir.
Stangveiði Mest lesið Stórurriði sleit sig lausann við Elliðavatn í gærkvöldi Veiði 59 laxar úr Bíldsfelli Veiði Grálúsugir laxar í lok október Veiði Kröftugar göngur í Eystri Rangá Veiði Ellefu milljónir úr Veiðikortasjóði til rjúpnarannsókna Veiði Nýtt veiðihús klárt fyrir næsta sumar í Brynjudalsá Veiði Gæsaveiðin hófst í dag Veiði SVFR leitar að mönnum til nefndarstarfa Veiði Fréttir úr Tungufljóti Veiði Dómsdagsspár um laxveiðina eiga ekki við rök að styðjast Veiði