Einstakar og einhleypar um jólin Stefán Árni Pálsson skrifar 11. desember 2020 07:01 Íslenskar konur eru þær glæsilegustu í heimi. Eftir einstaklega erfitt ár styttist í árið 2021 og bjartari tíma. Bóluefnið hefur verið fundið upp og ætti næsta ár að vera umtalsvert betra.
Árið 2020 er líklega erfiðasta ár einhleypra í sögunni. Lífið hefur því tekið saman lista yfir eftirsóttar einhleypar konur hér á landi. Sérstök nefnd Vísis var skipuð til að velja eftirsóttustu konur landsins og má sjá yfirferðina hér að neðan. Ellen Loftsdóttir er vafalítið ein af best klæddu konum landsins. Hún starfar sem listrænn stjórnandi og stílisti og hún er þekkt fyrir fágaðan og stílhreinan smekk. View this post on Instagram A post shared by ELLENLOFTS (@ellenlofts) Marín Þórsdóttir er með MBA gráðu frá HÍ og starfar sem deildarstjóri Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu. Hún er með mörg járn í eldinum, fer reglulega í sjósund, stundar fjallgöngur og hefur gefið út og komið að útgáfu nokkurra hannyrðabóka. Þá rak hún Kaffi Vest í nokkur ár. Marín er mikill fagurkeri, með eindæmum skemmtileg og elskar frönsk rauðvín. Lögmaðurinn og pistlahöfundurinn Arna Pálsdóttir þykir með efnilegri konum landsins, en hún hefur hlotið mikla athygli fyrir pistlaskrif sín á Vísi. Arna er nafntoguð innan tryggingageirans fyrir bæði gáfur og útlit. Arna þykir einstaklega hnyttin og skemmtileg og elskar útivist og hreyfingu. Þórdís Valsdóttir hefur slegið rækilega í gegn sem útvarpskona í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni undanfarna mánuði. Hún elskar hreyfingu og útivist og þykir með eindæmum hress og skemmtileg. Þórdís á tvær stúlkur úr fyrra sambandi. View this post on Instagram A post shared by Þórdís Valsdóttir (@thordisv) Bryndís Alexandersdóttir er verkfræðingur, ofurkona og ævintýrakona. Hún er mikill ferðalangur og setur það ekki fyrir sig að hoppa ein í ævintýraferðir og kanna heiminn. Hún kom að stofnun Móðurskipsins og sér um fjármál og rekstur hjá Íslenska fyrirtækinu Avo. Bryndís er stórglæsileg. Katrín Amni Friðriksdóttir er hagfræðingur og vítamíndrottning Íslands. Hún er annar eigandi íslenska vítamínfyrirtækisins Iceherbs og sjálf þróar hún bætiefni og heilsuvörur fyrir merkið. Katrín lauk meistaranámi frá Domus Academi í Mílan þar sem hún fékk gráðu í luxury management eða lúxusstjórnun. Hún er hefur mikinn áhuga á heilsu og segja sögur að hún sé einstaklega mikill húmoristi og ævintýrakona. View this post on Instagram A post shared by Katrín Amni (@katrinamni) Katrín Tanja Davíðsdóttir er ein stærsta stjarnan í heiminum í Crossfit heiminum. Hún er ótrúlega farsæl í sínu fagi og geislar ávallt í keppni. Katrín er stórglæsileg og elskar íþróttina en einnig samverustundir með vinum og fjölskyldu. View this post on Instagram A post shared by Katrín Tanja Davíðsdóttir (@katrintanja) Linda Pétursdóttir er einhver allra glæsilegasta kona landsins og hefur verið það í áratugi. Hún er einhleyp en Linda var valin Miss World árið 1988. Linda P hugsar vel um heilsuna og elskar að eyða tíma með dóttur sinni. Linda er meðal annars með gráðu í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði. View this post on Instagram A post shared by LIΠDΔ PÉTURSDÓTTIR (@lindape) Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir er önnur Crossfit-stjarna sem er að gera stórkostlega hluti á því sviði. Hún er til að mynda með 1,8 milljónir fylgjenda á Instagram. Eins og Katrín Tanja. Sara er stórglæsileg og hress og skemmtileg. Hún hefur náð langt í Crossfit og stefnir á toppinn. View this post on Instagram A post shared by Sara Sigmundsdóttir (@sarasigmunds) Saga Sig er einn besti ljósmyndari landsins og hefur verið það í þó nokkur ár. Saga er mikill listamaður og mjög sjarmerandi kona. Hún var ein af þeim fyrstu sem nefndin skilaði inn á lista. View this post on Instagram A post shared by Saga Sig (@sagasig) Ásdís Rán, ísdrottningin sjálf, er búsett í Búdapest og hefur verið ein glæsilegasta kona landsins í mörg ár. Hún er sterk og hefur ávallt farið sínar eigin leiðir. View this post on Instagram A post shared by IceQueen Official page (@asdisran) Elín Metta Jensen er ein besta knattspyrnukona landsins. Hún er landsliðskona og var í íslenska liðinu sem tryggði sér á lokamót Evrópukeppninnar sem fram fer árið 2022. Elín Metta er í læknisfræði. View this post on Instagram A post shared by Elín Metta Jensen (@elinmettaj) Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaður á Fréttablaðinu, og einn virtasti bókmenntarýnir landsins er einhleyp. Einstaklega flott kona sem er fær í sínu fagi. Kolbrún er mjög virt innan bókmenntageirans hér á landi og kemur reglulega fram sem gagnrýnandi í Kiljunni með Agli Helgasyni. Kolbrún Bergþórs er á lausu. Kristborg Bóel Steindórsdóttir er 44 ára fjögurra barna móðir sem hefur unnið lengi sem fjölmiðlakona. Hún er einstaklega fjörugur persónuleiki og alltaf mikið fjör í kringum hana. View this post on Instagram A post shared by Kristborg Bóel ▪️ICELAND (@boel76)
Ástin og lífið Mest lesið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Bíó og sjónvarp Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Lífið samstarf Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Geirvörtur og latex vekja athygli í París Tíska og hönnun Fleiri fréttir Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Sjá meira