Innlent

Umræða um launahækkun íslenskra ráðamanna: „Hæstvirtur fjármálaráðherra pirrast yfir minnstu hlutum“

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata í ræðustól Alþingis.
Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata í ræðustól Alþingis. Vísir/Vilhelm

Í óundirbúnum fyrirspurnum á alþingi í dag spurði Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata fjármálaráðherra út í boðaðar launahækkanir æðstu ráðamanna þjóðarinnar 1. maí og hvort ekki væri ástæða til þess að þeim yrði frestað aftur. 

„Ég hef ekki verið að taka neinar ákvarðanir um þessi efni. Ekki bara yfir höfuð nokkra einustu nema þá að ég lagði til hér við þingið, fyrir nokkrum síðan, að við myndum fresta hækkun sem á að koma til framkvæmda í sumar um sex mánuði,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.Vísir/Vilhelm

Fjármálaráðherra leiður á að ræða þessi mál í þingsal

„En það sem ég er orðinn leiður á að ræða þessi mál hér í þingsal. Að menn skuli ekki getað komið sér saman um það, yfir höfuð, að finna einhver fyrirkomulag sem að lætur þessa hluti ganga sinn vanagang yfir árin. Við lögðum niður kjaradóm, við lögðum niður kjararáð, og það er stutt síðan við ákváðum að festa viðmið um þessi efni í lög. Það er ekki einu sinni búið að framkvæma eina einustu breytingu á lögunum síðan þetta var ákveðið áður en að menn koma hingað upp í þingsal og ætla að slá sig til riddara með því að taka málin upp að nýju,“ sagði Bjarni.

Þykir ekki leiðinlegt að pirra hæstviran fjármálaráðherra

„Herra forseti, það sem ég mundi segja að mér þætti leiðinlegt að hafa pirrað hæstvirtan fjármálaráðherra, en mér þykir það bara ekkert leiðinlegt. Hæstvirtur fjármálaráðherra pirrast yfir minnstu hlutum,“ sagði Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata og spurði svo.

„Hver er afstaða hæstvirts fjármálaráðherra til þeirrar kröfu að þingmenn og ráðherrar hækki ekki í launum á sama tíma og við stefnum í djúpa efnahagskreppu?

„Þetta er sanngjörn spurning sem að er borin hér upp. hvað finnst mér um það að æðstu embættismenn ríkisins tækju á sig launaskerðingar núna við þessar aðstæður til þess að sýna gott fordæmi og fylgja öðrum í samfélaginu. Mér finnst það vel koma til greina,“ svaraði Bjarni.


Tengdar fréttir

Launahækkanir ráðamanna með ólíkindum á tímum verkfalla og kórónuveiru

Formaður Eflingar segir launahækkanir ráðamanna sýna fram á fáránleika þeirrar beiðni stjórnvalda að allir standi saman átímum kórónuveiru. Hluti þjóðarinnar fái hækkun á ofurlaunum ámeðan meirihlutinn sjái fram áatvinnuleysi, launalækkanir og erfiðari aðstæður í starfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×