Vinnumálastofnun nýtir ekki persónuafslátt einstaklinga við greiðslu bóta samhliða skertu starfshlutfalli. Af þeim sökum mun upphæð til útborgunar hjá lægstu launahópum, sem fara í 25% starfshlutfall, lækka töluvert eða því sem nemur ónýttum persónuafslætti. Sem dæmi má nefna að einstaklingur með 335 þúsund krónur í mánaðarlaun, sem fer í 25% starfshlutfall, mun fá rúmlega 26 þúsund krónum lægra útborgað en venjulega þegar hann fær bætur greiddar frá Vinnumálastofnun.
Á dögunum var samþykkt frumvarp félags- og barnamálaráðherra um rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta samhliða minnkuðu starfshlutfalli. Áhersla var lögð á að tekjulægstu hóparnir yrðu ekki fyrir tekjuskerðingu og var upprunalegum hugmyndum ríkisstjórnarinnar því breytt þannig að allir sem nú eru með fjögurhundruð þúsund krónur eða minna í laun á mánuði, munu fá jafnmikið samanlagt í launum og bótum.
Að öllu jöfnu nýtir Vinnumálastofnun persónuafslátt einstaklinga við útreikninga atvinnuleysisbóta. Við greiðslu bóta samhliða skertu starfshlutfalli verður það hins vegar ekki gert. Þetta þýðir að ef atvinnurekandi fullnýtir ekki persónuafslátt fyrir laun í skertu starfshlutfalli, safnast persónuafslátturinn upp og nýtist síðar. Persónuafsláttur nemur kr.54.628.
Launþegar lægstu launa munu finna fyrir þessu í formi lægri útborgunar launa þegar kemur að útborgunum atvinnuleysisbóta samhliða 25% skertu starfshlutfalli.
Á meðfylgjandi yfirliti má sjá dæmi um hvernig ónýttur persónuafsláttur getur haft áhrif á þá upphæð sem fólk er vant að fá til útborgunar af launum sínum.
Í umsóknarferli um atvinnuleysisbætur samhliða skertu starfshlutfalli þarf atvinnurekandi meðal annars að gefa upp áætluð laun skerðingu. Vinnumálastofnun hefur því upplýsingar um það fyrirfram hvort einstaklingur er að fá laun frá atvinnurekenda sem eru undir því marki að persónuafsláttur nýtist að fullu.
Á vefsíðu stofnunarinnar kemur fram að fyrstu bætur samhliða skertu starfshlutfalli verða útborgaðar þann 7.apríl næstkomandi.
Uppfært kl.13.09:
Unnur Sverrisdóttir, starfandi forstjóri Vinnumálastofnunar, segir að persónuafsláttur einstaklinga verði nýttur frá og með apríl mánuði. Annað hafi aldrei staðið til. Starfsfólk stofnunarinnar hafi hins vegar ekki verið upplýst um það sérstaklega að sá háttur yrði hafður á, eftir mars mánuð. Vísir hefur áræðanlegar heimildir fyrir því að fólk og fyrirtæki hafa fengið aðrar upplýsingar símleiðis hjá starfsfólki Vinnumálastofnunar síðustu daga, þó ekki væri verið að spyrja um mars mánuð sérstaklega. Unnur segir ákvarðanir sem þessar teknar á öðrum samráðsvettvangi og því hafi útfærslur fyrir apríl ekki verið ræddar sérstaklega við starfsfólk. Það hafi því ekki haft nýjustu upplýsingar varðandi útfærsluna.
Sjá nánar hér: Persónuafsláttur verður nýttur hjá Vinnumálastofnun í apríl