Arnaldur Indriðason hefur nánast haldið toppsætinu alveg samfellt frá aldamótum. Síðast þegar tókst að velta Arnaldi úr hásætinu var árið 2012.
Þá kom fram einhver óvæntasti smellur bóksölunnar, eða svarti hestur eins og þau í bókabransanum kalla slík fyrirbæri; Gísli á Uppsölum eftir Ingibjörgu Reynisdóttur. Árin á undan hafði Arnaldur haft tögl og hagldir á sölulistum.
Þannig að uppgjörslistirnar yfir bóksölu ársins 2020 sæta þannig nokkrum tíðindum.
Rithöfundar geta verið mjög ánægðir með árið
„Já,“ segir Bryndís Loftsdóttir hjá Fíbút, sérfræðingur Vísis í bóksölunni. „Þetta er ár hinna íslensku skáldverka, bóksala var með besta móti og salan dreifðist á óvenju marga titla. Það veldur því að líklega voru engin einstök sölumet slegin en
í heildina lítur út fyrir að bóksalan þessa þýðingamiklu tvo lokamánuði ársins hafi aukist um 15 prósent frá árinu áður.
Enginn nýliði nær að stimpla sinn inn á meðal 30 mest seldu íslensku skáldverkanna og karlmenn eiga þar aðeins þriðjung verka.“

Þannig má segja að Covid-árið, sem margir vilja bölva í sand og ösku, hafi verið afskaplega vænt og gott við rifhöfunda. Stóraukin voru framlög til listamanna en bróðurparturinn rann til rithöfundanna, umtalsverð hækkun varð á greiðslum úr bókasafnssjóði á árinu, hljóðbókaútgáfa jókst verulega sem og sala á skáldskap. Rithöfundar hugsa því væntanlega til þessa árs með nokkurri ánægju.
Leikararnir Ævar Þór og Gunnar Helgason hopa
En sé áfram litið sérstaklega til listanna þá voru einnig verulegar sviptingar hjá barnabókahöfundum.
„Orri óstöðvandi náði nú í sinni þriðju tilraun efsta sæti barnabókalistans og
Birgitta Haukdal setti nýtt met með því að eiga samtals 5 titla á meðal tuttugu mest seldu barnabókanna auk þess að hreppa þar annað sætið.
Leikara-rithöfundarnir Ævar Þór Benediktsson og Gunnar Helgason, sem undanfarin ár hafa skipt á milli sín efstu sætum listans hopa í ár, Ævar niður í þriðja sætið og Gunnar í það tíunda,“ segir Bryndís.
Á barnabókalistanum sjást tveir nýliðar. Sólborg Guðbrandsdóttir er óumdeildur nýliði ársins með bókina Fávita, sem lenti í ellefta sæti yfir mest seldu bækur ársins og fjórða sæti barnabókalistans. Nýr höfundur á barnabókalistanum er einnig Rut Guðnadóttir, dóttir Guðna Th…
„Og þó engin ævisaga nái inn á topp 20 listann þá verður það líka að teljast til tíðinda að liðlega tvítugur drengur eigi mest seldu ævisögu ársins. Það er auðvitað Herra Hnetusmjör eða Árni Páll Árnason, sonur Árna Magnússonar, fyrrverandi þingmanns og félagsmálaráðherra,“ segir Bryndís.
Ólafur Jóhann var í höfundatali Vísis á árinu og sagði þar á meðal annars að viðtökur skiptu hann miklu máli. Hann getur ekki kvartað undan þeim, Snerting hlaut feikigóðar viðtökur, svo góðar að hann náði að velta kóngi úr hásæti sínu.
Topplistinn
Árslistinn 2020
- Snerting - Ólafur Jóhann Ólafsson
- Þagnarmúr - Arnaldur Indriðason
- Bráðin - Yrsa Sigurðardóttir
- Vetrarmein - Ragnar Jónasson
- Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson
- Útkall - Á ögurstundu - Óttar Sveinsson
- Gata mæðranna - Kristín Marja Baldursdóttir
- Syngdu með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal
- Spænska veikin - Gunnar Þór Bjarnason
- Þín eigin undirdjúp - Ævar Þór Benediktsson
- Fávitar - Sólborg Guðbrandsdóttir
- UNA prjónabók - Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld
- Krakkalögin okkar - Jón Ólafsson, Úlfur Logason ofl.
- Dýralíf - Auður Ava Ólafsdóttir
- Lára lærir að lesa - Birgitta Haukdal
- Dauðabókin - Stefán Máni
- Verstu kennarar í heimi - David Walliams
- Fjarvera þín er myrkur - Jón Kalman Stefánsson
- Lára fer í leikhús - Birgitta Haukdal
- Skipulag - Sólrún Diego
Íslensk skáldverk
- Snerting - Ólafur Jóhann Ólafsson
- Þagnarmúr - Arnaldur Indriðason
- Bráðin - Yrsa Sigurðardóttir
- Vetrarmein - Ragnar Jónasson
- Gata mæðranna - Kristín Marja Baldursdóttir
- Dýralíf - Auður Ava Ólafsdóttir
- Dauðabókin - Stefán Máni
- Fjarvera þín er myrkur - Jón Kalman Stefánsson
- Eldarnir : Ástin og aðrar hamfarir - Sigríður Hagalín Björnsdóttir
- Undir Yggdrasil - Vilborg Davíðsdóttir
- Yfir bænum heima - Kristín Steinsdóttir
- Blóðrauður sjór - Lilja Sigurðardóttir
- Blóðberg - Þóra Karítas Árnadóttir
- 107 Reykjavík - Auður Jónsdóttir og Birna Anna Björnsdóttir
- Sykur - Katrín Júlíusdóttir
- Hansdætur - Benný Sif Ísleifsdóttir
- Konan sem elskaði fossinn : Sigríður í Brattholti - Eyrún Ingadóttir
- Aprílsólarkuldi - Elísabet Kristín Jökulsdóttir
- Ein - Ásdís Halla Bragadóttir
- Brúin yfir Tangagötuna - Eiríkur Örn Norðdahl
- Tíbrá - Ármann Jakobsson
- Næturskuggar - Eva Björg Ægisdóttir
- Truflunin - Steinar Bragi
- Bróðir - Halldór Armand
- Andlitslausa konan - Jónína Leósdóttir
- Svínshöfuð - kilja - Bergþóra Snæbjörnsdóttir
- Tengdadóttirin I - Guðrún frá Lundi
- Dauði skógar - Jónas Reynir Gunnarsson
- Morðin í Háskólabíó - Stella Blómkvist
- Tengdadóttirin II - Guðrún frá Lundi
Íslenskar barna- og ungmennabækur
- Orri óstöðvandi - Bókin hennar Möggu Messi - Bjarni Fritzson
- Syngdu með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal
- Þín eigin undirdjúp - Ævar Þór Benediktsson
- Fávitar - Sólborg Guðbrandsdóttir
- Krakkalögin okkar - Jón Ólafsson, Úlfur Logason ofl.
- Lára lærir að lesa - Birgitta Haukdal
- Lára fer í leikhús - Birgitta Haukdal
- Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson, Úlfur Logason ofl.
- Öflugir strákar: Trúðu á sjálfan þig - Bjarni Fritzson
- Barnaræninginn - Gunnar Helgason
- Hetja - Björk Jakobsdóttir
- Hestar - Hjörleifur Hjartarson og Rán Flygenring
- Vampírur, vesen og annað tilfallandi - Rut Guðnadóttir
- Þín eigin saga: Risaeðlur - Ævar Þór Benediktsson
- Iðunn og afi pönk - Gerður Kristný
- Gamlárskvöld með Láru - Birgitta Haukdal
- Fíasól og furðusaga um krakka með kött í maga - Kristín Helga Gunnarsdóttir
- Brandarar og gátur 5 - Huginn Þór Grétarsson
- Þín eigin saga: Knúsípons - Ævar Þór Benediktsson
- Jól með Láru - Birgitta Haukdal
Þýddar barna- og ungmennabækur
- Verstu kennarar í heimi - David Walliams
- Jólaföndur : leikja-, lita og límmiðabók - Bókafélagið
- Ísskrímslið - David Walliams
- Dagbók Kidda klaufa 13 : Snjóstríðið - Jeff Kinney
- Jólasyrpa 2020 - Walt Disney
- Jól í Múmíndal - Tove Jansson
- Handbók fyrir ofurhetjur 5 - Horfin - Elias og Agnes Våhlund
- Milljarðastrákurinn - David Walliams
- Dagbók Kidda klaufa 12 : Flóttinn í sólina - Jeff Kinney
- Jólaföndur : engin skæri, bara gaman - Unga ástin mín
- Fótbolti - Meistarataktar - Rob Colson
- Ding! Dong! Komum að leika! - Astley Baker
- Hundmann 2 - Taumaus - Dav Pilkey
- Sögur úr Múmíndal - Tove Jansson
- Risaeðlugengið : Kappsundið - Lars Mæhle
- Skólaráðgátan - Martin Widmark / Helena Willis
- Lögreglu- og slökkvibílar - David Hawcock
- Mannslíkaminn - Ryan Hobson
- Söguperlur fyrir svefninn - Setberg
- Töfraeinhyrningurinn hennar Gurru gríss - Peppa Pig
Fræði og almennt efni
- Útkall - Á ögurstundu - Óttar Sveinsson
- Spænska veikin - Gunnar Þór Bjarnason
- UNA prjónabók - Sjöfn Kristjánsdóttir og Salka Sól Eyfeld
- Skipulag - Sólrún Diego
- Kökur - Linda Ben
- Þess vegna sofum við : um mikilvægi svefns og drauma - Matthew Walker
- Skipulagsdagbók - Sólrún Diego
- Þegar heimurinn lokaðist - Davíð Logi Sigurðsson
- Vegahandbókin 2020 - Ýmsir höfundar
- Íslenskir vettlingar - Guðrún Hannele Henttinen
- Bubbi Morthens - ferillinn í fjörtíu ár - Árni Matthíasson
- Bakað með Elenoru Rós - Eleora Rós Georgsdóttir
- Kindasögur II - Aðalsteinn Eyþórsson og Guðjón Ragnar Jónasson
- Fimmaurabrandarar 2 - Fimmaurafélagið
- Ketóflex 3-3-1 mataræðið - Þorbjörg Hafsteinsdóttir
- Hrein Karfa - Kjartan Atli Kjartansson
- Prjónað á mig og mína - Lene Holme Samsøe
- Saumaklúbburinn - Berglind Hreiðarsdóttir
- Tíu skref í átt að innihaldsríku lífi - Bergsveinn Ólafsson
- Prjónað af ást - Lene Holme Samsøe
- Martröð í Mykinesi - Magnús Þór Hafsteinsson
- Samskipti - Pálmar Ragnarsson
- Keto - hormónalausnin - Gunnar Már Sigfússon
- Fuglinn sem gat ekki flogið - Gísli Pálsson
- Spegill fyrir skuggabaldur - Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Brimaldan stríða - Steinar J. Lúðvíksson
- Pottur, panna og Nanna - Nanna Rögnvaldardóttir
- Liverpool, flottasti klúbbur í heimi - Illugi Jökulsson
- Sumac - Þráinn Freyr Vigfússon
- 800 - fastan - Michael Mosley
Þýdd skáldverk
- Kóngsríkið - Jo Nesbø
- Silfurvængir - Camilla Läckberg
- Fórnarlamb 2117 - Jussi Adler Olsen
- Lygalíf fullorðinna - Elena Ferrante
- Jól í Sumareldhúsi Flóru - Jenny Colgan
- Í vondum félagsskap - Viveca Sten
- Brúðkaup í desember - Sarah Morgan
- Mitt (ó)fullkomna líf - Sophie Kinsella
- Á byrjunarreit - Lee Child
- Þerapistinn - Helene Flood
Ljóð og limrur
- Gervilimrur Gísla Rúnars - Gísli Rúnar Björgvinsson
- 140 vísnagátur - Páll Jónasson
- Látra-Björg - Helgi Jónsson
- Veirufangar og veraldarharmur - Valdimar Tómasson
- Innræti - Arndís Þórarinsdóttir
- Hetjusögur - Kristín Svava Tómasdóttir
- Draumstol - Gyrðir Elíasson
- Ljóðasafn Rumi - Söngur reyrsins - Jalaluddin Rumi
- Þagnarbindindi - Halla Þórlaug Óskarsdóttir
- Taugaboð á háspennulínu - Arndís Lóa Magnúsdóttir
Ævisögur
- Herra Hnetusmjör - hingað til - Sóli Hólm
- Glæpur við fæðingu - Trevor Noah
- Sögur handa Kára - Ólafur Ragnar Grímsson
- Berskjaldaður : Barátta Einars Þórs fyrir lífi og ást - Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
- Ellert - Ellert B. Schram og Björn Jón Bragason
- Dóttir - Katrín Tanja Davíðsdóttir
- Vigdís Jack : Sveitastelpan sem varð prestsfrú - Gyða Skúladóttir
- Brosað gegnum tárin - Bryndís Schram
- Svo týnist hjartaslóð : Þroskasaga Betu Reynis - Valgeir Skagfjörð og Elísabet Reynisdóttir
- Fæddur til að fækka tárum : Káinn - Jón Hjaltason