Viðskipti innlent

Íslenskir forritarar höfðu betur í baráttu við Ballarin um vangoldin laun

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Michelle Ballarin, eigandi USAerospace.
Michelle Ballarin, eigandi USAerospace. Vísir/Baldur Hrafnkell

USAerospace Associates LLC, félag í eigu Michelle Ballarin sem hefur stefnt að flugrekstri undir merkjum WOW air, hefur verið dæmt til að greiða tveimur forriturum rúmlega fjörutíu milljón krónur í vangoldin laun. Dómur var kveðinn upp í héraði í dag.

Forritararnir, Sturla Þorvaldsson og Róbert Leifsson, eru eigendur félagsins Maverick ehf sem tók að sér að setja upp bókunarkerfi fyrir WOW air. Þeir höfðuðu mál eftir að verktakasamningi var sagt upp við þá fyrirvaralaust í ársbyrjun 2020 en þegar áttu þeir inni laun hjá USAerospace.

Héraðsdómur taldi USAerospace ekki hafa tekist að sanna staðhæfingu sína að hugbúnaður íslenska félagsins hefði verið gallaður eða félagið vanefnt skuldbindingar sínar samkvæmt samningi. Gögn málsins bæru með sér að Páll Ágúst Ólafsson, lögmaður USAerospace, hefði ítrekað í samskiptum við forritarana sagt greiðslur væntanlegar. Voru lögð fram samskipti í gegnum forritið Whatsapp hvað þetta varðaði.

Greiðslur hafi ekki borist nema að takmörkuðu leyti. Vanskil hafi því verið orðin umtalsverð löngu áður en gerðar voru athugasemdir við þjónustuna í janúar 2020. Fram að þeim tíma hefði ekki verið gerð nein athugasemd við útgefna reikninga forritaranna eða andmælt þeim á annan hátt.

Var félag Ballarin dæmt til að greiða forriturunum rúmlega fjörutíu milljónir króna auk dráttarvaxta frá september til nóvember 2019. Þá þurfti félagið að greiða málskostnað, um eina og hálfa milljón króna.

Annað mál er varðar USAerospace bíður niðurstöðu hjá dómstólum. Þar stefnir Engilbert Hafsteinsson, fjárfestir og fyrrverandi framkvæmdastjóri sölu og markaðssviðs WOW air, USAerospace fyrir notkun á markaðsefni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×