Úganda: Lögð drög að valdeflingu kvenna í Buikwe héraði Heimslós 21. janúar 2021 10:21 Frá Buikwe. Gunnisal Vinnustofa um stefnumótandi áætlun um efnahagslega valdeflingu kvenna var haldin í síðustu viku í Buikwe héraði í Úganda. Ísland styður verkefnið. Héraðsyfirvöld í Buikwe eru með stuðningi frá Íslandi að þróa stefnumótandi áætlun til næstu fimm ára um efnahagslega valdeflingu kvenna í fiskisamfélögum héraðsins. Buikwe er helsta samstarfshérað Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu í Úganda en þróunarverkefnin beinast að því að bæta lífsgæði íbúa í 39 fiskiþorpum við strönd Viktoríuvatns. Vinnustofa um stefnumótunina var haldin í síðustu viku með þátttöku 37 fulltrúa frá fiskisamfélögunum, ráðuneytum landbúnaðar og sveitarstjórna, héraðsstjórn, félagasamtökum og sendiráði Íslands í Kampala. „Þátttakendur veltu fyrir sér ýmsum úrlausnarefnum sem snúa að valdeflingu kvenna í fiskveiðisamfélögum og ræddu hugsanlegar lausnir sem væru líklegar að skila jákvæðum breytingum og yrðu framkvæmdar af héraðsstjórninni. Síðar kæmi til stuðningur frá Íslandi við ákveðna þætti, í samræmi við þá stefnumótun sem fyrir liggur um verkefnin í héraðinu milli Íslands og héraðsstjórnarinnar,“ segir Finnbogi Rútur Arnarson starfandi forstöðumaður sendiráðsins. Þátttakendur á vinnustofunni. MS Fulltrúar héraðsins hrósuðu mjög samstarfi Íslands og héraðsins. „Ólíkt mörgum verkefnum í Úganda sem einkennast af spillingu hefur þróunarverkefnið í Buikwe verið framkvæmt án spillingar, ekki síst vegna stöðugs eftirlits sendiráðsins með framkvæmd verkefnanna. Þess vegna hefur okkur tekist að ná áþreifanlegum árangri sem breytt hefur Buikwe til batnaðar á aðeins fjórum árum, meðal annars í skólamálum, vatns-, salernis- og hreinlætismálum og viðbrögðum við COVID-19,“ sagði Mathias Kigongo héraðsstjóri. Finnbogi Rútur sagði í lokaorðum sínum að hann væri alinn upp af ömmu sinni með þeirri lífsspeki að „kona getur gert allt sem karlmaður getur gert, oftast betur!“ Þá hugmyndafræði þyrfti að hafa að leiðarljósi framvegis í samstarfsverkefnum Íslands og Buikwe. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Úganda Jafnréttismál Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Úganda Jafnréttismál Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent