Fjölskyldubingó á Stöð 2: Náðu í bingóspjöldin hér Tinni Sveinsson skrifar 29. janúar 2021 09:00 Fjölskyldubingó verður í beinni útsendingu á laugardag klukkan 18.55. Á laugardag klukkan 18.55 fer fram Fjölskyldubingó á Stöð 2. Bingóstjóri þáttarins er Vilhelm Anton Jónsson, Villi naglbítur, og verður fjöldinn allur af vinningum í boði fyrir þá sem eru svo heppnir að fá bingó.
Hér fyrir neðan er hægt að ná í bingóspjöld. Útsendingin er í boði fyrir áskrifendur Stöðvar 2 og hvetjum við alla fjölskyldumeðlimi til að taka þátt. Fyrsti þáttur bingósins fór fram síðasta laugardag og voru hátt í þrjátíu þúsund spjöld sótt. Bingóið er spilað hér á vefsíðunni. Til þess að fá bingóspjöld þarf að skrifa fullt nafn og slá inn símanúmer. Síðan skrá sig inn með tölunum sem sendar eru með smáskilaboðum í það símanúmer. Þá eru spjöldin orðin virk. Athugið að spjöldum er úthlutað á símanúmer, hægt er að skrá sama símanúmer í fleiri en eitt tæki en þá koma sömu spjöld. Tækin muna eftir innskráningunni þannig að hægt er að fara af síðunni og koma aftur. Síðan er um að gera að fylgjast vandlega með því þegar Villi dregur út tölurnar. Ef þú skyldir fá bingó áttu að ýta á Bingó-takkann neðst á spjaldinu um leið. Ef þú ert í stuði er gott að kalla líka „BINGÓ!“ Í kvöld verða spilaðir leikirnir sem sjást hér á myndinni, I-G, Y og Z. Í þættinum verða spilaðir þrír leikir. Fyrst I-G, síðan Y og Z. Í leiknum I-G eru spilaðar tvær línur og þarf að fá allar tölurnar í þeim báðum til að fá bingó. Í leiknum Y þarf að fá allar tölurnar sem mynda Y á spjaldinu. Þá eru allar tölurnar á spjaldinu undir. Í leiknum Z þarf að fá allar tölurnar sem mynda Z á spjaldinu. Þá eru allar tölurnar á spjaldinu undir. Vinningur í fyrsta leik er í boði ZO•ON sem gefur tvær úlpur að verðmæti alls 240 þúsund. Í öðrum leik gefur Habitat veglegt 200 þúsund króna gjafabréf. Í þriðja vinning gefur Weber á Íslandi fjögurra brennara Genesis gasgrill en á grillinu er stór og góður grillflötur. Að auki gefur Hagkaup fimmtíu þúsund króna gjafabréf. Þá eru einnig aukavinningar frá Sambíóunum. Gangi ykkur vel og góða bingóskemmtun..
Fjölskyldubingó Mest lesið Júnía Lín komin í milljónaklúbbinn Lífið „Eins nakin og ég kemst upp með“ Tíska og hönnun Slíðruðu sverðin á árshátíð borgarstjórnar Lífið Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Tónlist „Besti tími lífs míns hingað til“ Lífið Tvö ár af ást hjá Charlie og Laufeyju Lífið Ragnheiður fékk heilablóðfall á Spáni Lífið Hailey Bieber slær í gegn á þvengnum Tíska og hönnun Diddy selur svörtu einkaþotuna Lífið „Minnstur aldursmunur á okkur af öllum pörum“ Lífið Fleiri fréttir Innflytjendamálin eru fíllinn í stofunni Júnía Lín komin í milljónaklúbbinn Skóli við rætur Vatnajökuls Faðir Dilberts allur Tvö ár af ást hjá Charlie og Laufeyju Slíðruðu sverðin á árshátíð borgarstjórnar Diddy selur svörtu einkaþotuna Gummi Tóta og Guðbjörg eiga von á öðru barni Ragnheiður fékk heilablóðfall á Spáni „Hvaða rugl er þetta?“ „Besti tími lífs míns hingað til“ Spá Ísrael sigri marga mánuði fram í tímann „Minnstur aldursmunur á okkur af öllum pörum“ Fannar og Jói böðuðu hvor annan Fjölmenni í Tene-afmæli Gurrýjar en enga Sólrúnu Diego að sjá „Litlu kóngarnir“ sjaldan verið heitari Þessi nældu sér í verðlaun á Golden Globe „Á Íslandi eru konur hvattar til að dreyma og vera í forystu“ Stjörnulífið: Ár gellunnar Hús Björns og Hafdísar það dýrasta sem hefur verið selt Fresta tökum á Love Island All Stars Finnur fyrsti óperustjórinn Þegar miðborgin stóð í ljósum logum Sjá Jón Kára sem barn með óendanlega möguleika Krakkatía vikunnar: Borgarstjóri, Stubbarnir og handbolti Bob Weir látinn Stóru spurningunni um dularfullt slys enn ósvarað Minnast Magnúsar Eiríkssonar: „Góða ferð, elsku vinur“ Fréttatía vikunnar: Björk, EM í handbolta og Alvotech RÚV hættir við Söngvakeppnina Sjá meira