Lífið

Ráð­herrar brugðu á leik og tóku lagið

Eiður Þór Árnason skrifar
Ráðherrarnir sex virðast skemmta sér vel í kvöld.
Ráðherrarnir sex virðast skemmta sér vel í kvöld. Kristrún Frostadóttir

Karlráðherrar ríkisstjórnarinnar brugðu á leik á árshátíð Stjórnarráðsins í kvöld og klæddu sig upp í fangagalla með tilvísun í strákasveitina Iceguys. Ráðherrarnir gengu svo skrefinu lengra og tóku Iceguys-lagið Gemmér gemmér uppi á sviði og létu ekki sitt eftir liggja í sviðshreyfingum, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra birtir mynd af sér með Loga Einarssyni, Eyjólfi Ármannssyni, Jóhanni Páli Jóhannssyni, Daða Má Kristóferssyni og Ragnari Þór Ingólfssyni á samfélagsmiðlum sínum og vísar til þeirra sem „SpiceGuys“. 

Hún segir uppátækið vera svar við atriði Valkyrjanna svokölluðu á árshátíð Stjórnarráðsins í fyrra þar sem ráðherrarnir Kristrún, Inga Sæland og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tóku lögin The Best með Tinu Turner og You Don't Own Me, sem Lesley Gore gerði frægt, með eftirminnilegum hætti.

Árshátíð Stjórnarráðsins fer fram í veislusalnum Vör við Skarfabakka þar sem gestir njóta sjávarútsýnis og sá fjármála- og efnahagsráðuneytið um skipulagningu veislunnar að þessu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.