Kappakstur á RIG í beinni á Stöð 2 e-sport Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 30. janúar 2021 15:31 Kappakstur í stafrænum heimi. GT Akademían Klukkan 16:00 í dag hefst stafrænt kappakstursmót sem hluti af Reykjavík International Games íþróttahátíðinni #RIG21. Keppnin fer fram í gegnum netið og notast er við hermikappaksturs forritið iRacing. Margir af fremstu akstursíþróttamönnum landsins taka þátt, þar á meðal ríkjandi Íslandsmeistari í Rallakstri 2020 Gunnar Karl Jóhannesson, og fyrrum formúlu 3 ökumaðurinn Kristján Einar Kristjánsson. Gert er ráð fyrir þátttöku nokkurra erlendra ökumanna.
Um er að ræða tvær 60 mín keppnir, ein í dag, laugardag og önnur á morgun, sunnudag. Keppnin á laugardag er haldin á Le Mans brautinni í Frakklandi og ekið er á LMP2 bílum. Sunnudags-keppnin er keyrð á Mözdu MX5 bílum og óvenjuleg að því leyti að enginn ökumaður veit hvaða braut er ekið fyrr en æfing hefst á sunnudag. Teningi er kastað og ein braut af 6 mögulegum stuttum brautum er valin. Sunnudagskeppninni er skipt í tvær 30 mín umferðir, og seinni keppni hefst í öfugri rásröð miðað við úrslit fyrri umferðar. Æfingar hefjast báða daga kl. 16.00 og kappakstur á slaginu 18.00. Keppnirnar verða í beinni útsendingu frá kl. 17.30 á Stöð2 e-Sport rásinni og einnig streymt í gegnum Youtube rás #RIG21. Um Starfrænt-Mótorsport Stafrænt mótorsport, eða Hermikappakstur, er stafrænt form af kappakstri þar sem ekið er eftir alvöru brautum og bílum sem hafa verið settar í stafrænt form. Brautirnar eru flestar geisla-mældar svo að frávik frá smáatriðum brautarinnar eru innan við millimetra. Tækin sem notuð eru, eru hönnuð til að líkja eftir hegðun alvöru stýrisbúnaðar, bremsu og bensín pedala. Allt er gert til að stafrænn akstur líkist raun akstri sem mest. Margir af þekktustu ökumönnum okkar tíma taka nú þegar þátt í stafrænu mótorsporti samhliða raunheimasportinu.
Rafíþróttir Mest lesið Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Erlent „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Innlent „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Erlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Stúlkan er fundin Innlent Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Innlent