Spá allt að ellefu stiga hita Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 25. febrúar 2021 07:26 Hitaspákort morgundagsins lítur ágætlega út. Veðurstofa Íslands Veðurstofan spáir fremur hægum vindi í dag og á sunnanverðu landinu þykknar upp með smáskúrum. Fyrir norðan rofar smám saman til eftir þungbúið veður í gær og það hlýnar í veðri; hiti verður eitt til fimm stig seinnipartinn en víða vægt frost á Norður- og Austurlandi.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þar segir að seint í dag nálgist svo skil landið úr suðvestri og í kvöld gengur hann síðan í suðaustan tíu til átján metra á sekúndu með rigningu um landið sunnan- og vestanvert. „Sunnan kaldi eða strekkingur á morgun og rigning eða skúrir, og talsverð úrkoma um tíma á Suðausturlandi, en þurrt að kalla á norðaustanverðu landinu. Það hlýnar talsvert, en hiti verður víða á bilinu 4 til 11 stig. Það bætir í vind annað kvöld og á laugardag er útlit fyrir ákveðna suðlæga átt með áframhaldandi vætu sunnan- og vestantil,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu: Fremur hæg breytileg átt í dag og þykknar upp með smáskúrum S-lands, en rofar smám saman til fyrir norðan. Hlýnandi, hiti 1 til 6 stig seinnipartinn, en vægt frost á N- og A-landi. Vaxandi suðaustanátt í kvöld og fer að rigna um landið S- og V-vert. Sunnan 8-15 m/s á morgun og rigning eða skúrir, en úrkomulítið um landið NA-vert. Hiti 4 til 11 stig. Bætir í vind annað kvöld. Á föstudag: Suðlæg átt, víða 8-15 m/s. Rigning eða skúrir, einkum SA-lands, en úrkomulítið um landið NA-vert. Hiti 4 til 11 stig. Bætir í vind um kvöldið. Á laugardag: Sunnan 13-20 og rigning, sums staðar talsverð úrkoma, en þurrt að kalla NA-til. Hiti breytist lítið. Hvassari suðvestanátt um kvöldið með skúrum eða éljum og kólnandi veðri. Á sunnudag: Hvöss suðvestanátt og éljagangur, en bjartviðri A-lands. Hiti um og yfir frostmarki. Dregur úr vindi síðdegis. Á mánudag: Minnkandi vestlæg átt og léttskýjað, en dálítil él N- og V-lands. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag: Suðaustanátt og skýjað með köflum, hiti 0 til 5 stig. Bjartviðri á N- og A-landi og frost 1 til 8 stig. Á miðvikudag: Útlit fyrir suðaustlæga átt með vætu S- og V-lands. Hlýnandi veður.
Veður Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Sjá meira