Lægð færir með sér vaxandi suðaustanátt og rigningu Eiður Þór Árnason skrifar 7. mars 2021 08:38 Hægviðri verður víðast hvar í dag. Vísir/vilhelm Í dag er útlit fyrir breytilega átt, þrjá til átta metra á sekúndu og bjartviðri en lítilsháttar vætu vestan- og norðvestanlands fram undir hádegi. Þá mun bera á vaxandi suðaustanátt og þykknar upp suðvestanlands seint í kvöld.
Hægviðri verður á landinu í dag og víða léttskýjað, hiti á bilinu núll til sex stig en um frostmark norðaustanlands. Við Hvarf er lægð á leið til landsins og koma skil frá henni að suðvesturhorni landsins í kvöld. Fylgir þeim vaxandi suðaustanátt og rigning en þurrt verður norðaustantil fram á morgundaginn. Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands að skilin gangi þó nokkuð hratt yfir og í kjölfar þeirra snúist í suðvestanátt sunnan- og vestanlands í fyrramálið með skúrum eða slydduéljum en slyddu eða snjókomu með köflum á Norður- og Austurlandi. Á morgun er spáð suðaustan tíu til fimmtán metrum á sekúndu og rigningu með köflum sunnan- og vestantil í fyrramálið en hægari vindi og úrkomulaust norðaustanlands. Snýst í suðvestan fimm til þrettán metra á sekúndu eftir hádegi, hiti núll til sex stig að deginum. Dregur úr vindi og kólnar heldur annað kvöld. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Hæg breytileg átt og skýjað með köflum en vaxandi norðanátt síðdegis. Norðan 8-15 og rigning eða slydda á austanverðu landinu um kvöldið en él við norðurströndina. Hiti 0 til 4 stig yfir daginn en frost 0 til 6 stig um kvöldið. Á miðvikudag: Norðan og norðaustan 8-15 m/s og slydda eða snjókoma en úrkomuminna á Suður og Suðvesturlandi. Lægir og styttir upp austantil síðdegis en hvessir á Vestfjörðum. Hiti 0 til 4 stig syðst annars um og undir frostmarki. Á fimmtudag: Norðaustlæg átt og slydda eða snjókoma á norðvestanverðu landinu en stöku skúrir syðra. Hægari sunnanátt og lítilsháttar væta á austanverðu landinu en snýst í norðlæga átt þar seinni partinn. Hiti um og yfir frostmarki. Á föstudag: Útlit fyrir norðaustanátt og kólnandi veður. Él við norður og austurströndina en úrkomulítið í öðrum landshlutum. Á laugardag: Útlit fyrir áframhaldandi norðaustanátt og éljagang á norðanverðu landinu en bjartviðri syðra. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Sjá meira