Erlent

Landtökumenn réðust á evrópska erind­reka

Agnar Már Másson skrifar
Belgísk stjórnvöld hafa fordæmt árásina.
Belgísk stjórnvöld hafa fordæmt árásina.

Ísraelskir landtökumenn réðust í dag á hóp evrópskra erindreka á Vesturbakkanum í Palestínu. Belgísk stjórnvöld og Ísraelsher fordæma árásina en ísraelska forsætisráðuneytið dregur frásögnina í efa.

Breska ríkisútvarpið greinir frá þessu og segir að belgísk stjórnvöld hafi fordæmt árásina, sem beindist meðal annars að aðalræðismanni Belgíu í Ísrael og fleiri diplómötum. Belgar fara fram á að Ísraelsmenn dragi gerendur til ábyrgðar.

Ísraelsher fordæmdi einnig árásina og sagðist rannsaka atvikið, sem þeir kölluðu „alvarlegt ofbeldisverk“.

Aftur á móti hefur ráðuneyti Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra dregið frásögnina í efa og gefið í skyn að um nú standi yfir „skipulögð herferð til þess að sverta orðspor Ísraelsmanna“.

Í gær særðist fjöldi Palestínumanna auk Heidi Levine, blaðaljósmyndara Washington Post, í annarri árás af hálfu landtökumanna á þorp í Vesturbakkanum.

Í gær gerðu landtökumenn einnig árás á palestínumenn á Vesturbakkanum á meðan ólífuuppskera stóð yfir.AP

Erindrekarnir, sem eru fulltrúar Belgíu, Frakklands, Póllands og kaþólsku kirkjunnar, voru að heimsækja kristna þorpið Taybeh í nágrenni við Ramallah þegar árásin átti sér stað.

Þeir höfðu sótt þorpið heim til þess að meta aðstæður á svæðinu eftir linnulausar árásir af hálfu landtökumanna undanfarna mánuði, en ólífuuppskera stendur yfir um þessar mundir á Vesturbakkanum.

Á myndskeiði mátti sjá grímuklædda menn eiga í orðaskiptum við erindrekana.

Belgísk stjórnvöld hafa, að sögn BBC, gefið út að rúða hafi verið brotin á bíl sem var á vegum belgísku ræðismannsskrifstofunnar auk þess sem ráðist hafi verið á Bernard Baudoux, sveitarstjóra í franska sveitarfélaginu Aulnoye-Aymeries.

„Palestínumenn þurfa að þola þetta ofbeldi á hverjum degi. Landtökumenn beina spjótum sínum einnig að umfjöllun fjölmiðla og erindrekum. Það eitt að uppskera ólífur, segja fréttir eða að sinna diplómatískum skyldum sínum ætti aldrei að stefna neinum í hættu á því að verða fyrir árás,“ sagði Maxime Prevot, utanríkisráðherra Belgíu.

Gideon Sa'ar, utanríkisráðherra Ísraels, hefur fordæmt árásina og kallað gerendurna ísraelska óeirðaseggi. Ráðuneytið hyggst vera í samskiptum við sendiherra viðkomandi landa.

Hann tók þó fram: „Án þess að dregið sé úr alvarleika atviksins er óheppilegt að heimsóknin hafi ekki verið skipulögð ásamt Ísraelsher fyrir fram. Slíkt skipulag hefði getað hjálpað við að tryggja öryggi gestanna.“

Ísraelsher hefur sagt í yfirlýsingu að engir hermenn hafi verið á svæðinu þegar árásin átti sér stað.

Í yfirlýsingu forsætisráðuneytisins er þó brýnt fyrir almenningi að sýna varkárni áður en fólk kemur sér að niðurstöðu. Myndskeið á samfélagsmiðlum „sýna ekki fram á alla atburðarásina eða ábyrgð einstaklinga,“ sagði í yfirlýsingunni þar sem tekið var fram að málið væri enn til rannsóknar.

„[Þ]essar fréttir berast á sama tíma og áhyggjur eru uppi um skipulagða herferð til þess að sverta orðspor Ísraels og gyðinga sem búa í Júdeu og Samaríu [þ.e. Vesturbakkanum] á meðan hin árlega ólífuuppskera stendur yfir, og [fréttirnar] reiða sig á ýktar fyrirsagnir áður en allar staðreyndir málsins liggja fyrir.

Baudoux, franski sveitarstjórinn sem á var ráðist, sagði við AFP að árásirnar væru til marks um umburðarlyndi ísraelskra stjórnvalda gagnvart ofbeldi af hálfu landtökumanna. Hann sagði að landtökumennirnir hefðu sparkað í sig, lamið sig og kastað sér í jörðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×