Jarðskjálftahrina við Reykjanestá Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 19. mars 2021 06:14 Eins og sést á þessu korti hefur verið töluverð skjálftavirkni við Reykjanestá. Veðurstofa Íslands Upp úr klukkan 04:30 í morgun hófst jarðskjálftahrina um fjóra kílómetra vestnorðvestur af Reykjanestá.
Elísabet Pálmadóttir, nátttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að um 150 skjálftar hafi mælst í hrinunni. Átta þeirra hafi verið yfir þremur og tveir 3,7 að stærð. Tilkynningar hafa borist Veðurstofunni um að þeir skjálftar hafi fundist í nágrenninu, til að mynda í Grindavík. Enginn órói fylgir virkninni og segir Elísabet að það sé ekki óvenjulegt að skjálftavirknin hoppi svona á milli eldstöðvakerfanna á Reykjanesskaga. Það hafi til dæmis verið viðvarandi í fyrra þegar landris hófst við Þorbjörn. Um 400 skjálftar hafa mælst á Reykjanesskaga og Reykjaneshrygg frá miðnætti. Virknin hefur aðallega verið við Fagradalsfjall og Reykjanestá. Það hafa því aðeins mælst um 250 skjálftar í og við Fagradalsfjall nótt og samkvæmt töflu á vef Veðurstofunnar var enginn þeirra yfir þremur en á því svæði hefur virknin verið hvað mest undanfarnar vikur. Elísabet segir að þótt dregið hafi úr skjálftavirkninni undanfarna daga þá telja vísindamenn enn líkur á eldgosi á skaganum. Þá séu enn líkur á stærri skjálftum og svo geti þetta einfaldlega fjarað út án þess að nokkuð meira gerist. Fréttin var uppfærð klukkan 06:35.
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Mest lesið Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira