Mercedes-Benz kynnir tæknina að baki EQS Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 5. apríl 2021 07:01 EQS. Mercedes-Benz hefur gefið út tæknilegar upplýsingar um EQS, nýtt rafdrifið flaggskip í fólksbílaflota Mercedes-Benz. Tvær gerðir rafhlaða verða í boði sem og talsverður fjöldi uppstillinga á drifrafhlöðum. Bíllinn verður heimsfrumsýndur 15. apríl, þá má vænta frekari upplýsinga um verð og annað.
EQS byggir á EVA grunninum sem Mercedes-Benz hyggst nota í mörgum örðum undirtegundum, svosem EQE og jepplingaútgáfum áf EQS og EQE. „Næsta kynslóð af rafbílum á lúxus og gæða markaði er byggð á sérþróuðum arkitektúr, sem er skalanlegur að öllu eyti og getur verið notaður þvert á undirtegundir. Hjólhafið og breidd, ásamt kerfiseiningum, sérstaklega rafhlöðum eru breytilegar stærðir, þökk sé hönnuninni. Bílarnir verða því eins hentugir hverjum stærðarflokki og hægt er, auk þess að vera miðaðir að framtíðinni, rafhlöðudrifnum undirtegundum,“ segir í kynningu frá fyrirtækinu. Hámarksdrægni er um 770 km samkvæmt WLTP staðlinum. Tvær tegundir rafhlaða verða í boði, 107,8 kWh og 90 kWh. Stærri útgafan er sú sem getur skila um 770 km drægni en sú minni um 640 km. Innra rými í Mercedes-Benz EQS. Notast verður við NCM 811 lithium-ion sellur (nikkel, kóbalt og mangan í hlutföllunum 8:1:1) í hörðum vösum. Það eru 10 eða 12 einingar (90og 107,8 kWh útgáfur. Hleðsla Mercedes-Benz EQS kemur með 22kWh, þriggja fasa hleðslugetu (í Evrópu). Hraðhleðsla mun geta numið um 200 kW. Mercedes-Benz lofar að á 15 mínútum verði bíllinn kominn með 300 km drægni í stærri rafhlöðunni. Þá mun EQS sumstaðar geta verið rafaflgjafi líka, það er að segja að hann mætti nýta til að fá rafmagn inn á heimili eða sumarbústaði. Þetta á til dæmis við í Japan.
Vistvænir bílar Mest lesið Fékk sex milljónum of há laun og neitaði að endurgreiða þau Innlent Tollar á vörur frá Íslandi verða 15 prósent samkvæmt forsetatilskipun Erlent Sakar sveitastjórann um atvinnuróg og „kæfandi klámhögg“ Innlent Annasamt ár á Bessastöðum: Kóngafólk, keisari, umtöluð undirskrift og brúnir skór Innlent Freista þess að hindra að Bandaríkin fargi miklu magni getnaðarvarna Erlent Áhrifin af stöðvunarkröfunni óveruleg Innlent Arabaríkin sameinast um afvopnun Hamas og fordæmingu á árásunum 7. október Erlent „Eins og að vera úti á rúmsjó“ í Eyjum annað kvöld Veður Varasamar aðstæður fyrir ferðalanga Veður Þyrlan farin vestur í hvítabjarnareftirlit Innlent