Kavíar er nýja flugan sem þú þarft að prófa Karl Lúðvíksson skrifar 6. apríl 2021 12:22 Það er alltaf gaman að sýna nýjar flugur og svo ég tali ekki um að prófa nýjar flugur og sjá hvernig þær reynast.
Það er alltaf gaman að sýna nýjar flugur og svo ég tali ekki um að prófa nýjar flugur og sjá hvernig þær reynast. Við höfum í þetta skiptið dottið niður á aldeilis flotta nýjung í hnýtingum og það er okkar tilfinning að þessi fluga gæti reynst fiskum nokkuð skeinuhætt. Það er veiðikonan Helga Gísladóttir sem á heiðurinn af þessari flugu sem ber nafn með rentu. Flugan heitir Kavíar og er hnýtt eins og lítil hrúga af hrognum. Það þekkja það eflaust margir vel frá því að hrognaveiði var leyfð hvað hrognin gátu verið skæð, sérstaklega í urriða og sjóbirting. Helga Gísladóttir Eins og sést á meðfylgjandi mynd er þetta virkilega flott og veiðileg fluga en vígslan á henni hefur þegar farið fram og það með góðum árangri. "Ég á minningar af því að veiða með hrognum og vildi bara líkja eftir því" sagði Helga Gísladóttir höfundur flugunnar í samtali við Veiðivísi. "Fyrsti fiskurinn veiddist á fluguna í Þjórsá en það var 70 sjóbirtingur sem reif hana í sig og það er klárt mál að ég á eftir að prófa þessa flugu víðar á þessu vori". Við reiknum bara fastlega með því að Helga gefi sitt góðfúslega leyfi til að hnýta eftir flugunni en það gæti orðið nokkuð vandasamt verk því það er ekki auðvelt að hnýta hana en miðað við hvað við teljum að hún gæti orðið veiðin er það sjálfsagt minnsta mál að gefa sér tíma í það.
Stangveiði Mest lesið SVFR: Vefsalan hafin Veiði Sjóbirtingurinn er mættur í Varmá Veiði 100% meiri laxveiði en í fyrra Veiði RISE fluguveiði- hátíðin fer fram 14. apríl Veiði Góð rjúpnaveiði um allt land í gær Veiði Vatnsleysi gerir laxveiðina erfiða Veiði Vegaskytterí stundað þrátt fyrir augljós lögbrot Veiði Breiðdalsá með augum Nils Jörgensen Veiði Dræmt á efstu svæðum Blöndu Veiði Eystri Rangá að nálgast 2.000 laxa Veiði