Tilkynningum um vanrækslu og ofbeldi gegn börnum hefur fjölgað í faraldrinum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 27. apríl 2021 06:52 Fleiri tilkynningar hafa borist í faraldrinum vegna vanrækslu og/eða ofbeldis gegn börnum. Tilkynningum um vanrækslu barna fjölgaði um 19,2 prósent á 12 mánuðum eftir skilgreindan upphafspunkt kórónuveirufaraldursins, 1. mars 2020. Árin þar á undan hafði fjölgunin verið, að meðaltali, um 10 til 11 prósent milli ára.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Barnaverndarstofu. Þar segir einnig að frá 1. mars 2020 hafi borist óvenju margar tilkynningar í hverjum mánuði vegna ofbeldis gegn börnum. Meðalfjöldi tilkynninga á mánuði fram til 28. febrúar 2021 var þannig 315, sem er um eða yfir hæsta gildi áranna á undan. Þá segir einnig að tilkynningum um að heilsu eða lífi ófædds barns væri stefnt í hættu fjölgaði úr 88 á tímabilinu 1. mars 2019 til 29. febrúar 2020 í 148 á tímabilinu 1. mars 2020 til 28. febrúar 2021. Þetta er 68,2 prósent aukning. „Barnaverndartilkynningar, þar sem óttast er að heilsu eða lífi ófædds barns sé stefnt í hættu, eru almennt fáar, á milli 5-10 í mánuði á landsvísu. Þar sem um tiltölulegar fáar tilkynningar er að ræða geta breytingar á milli mánaða eða jafnvel ára verið nokkuð skarpar. Því er mikilvægt að líta yfir lengra tímabil til að átta sig á hvort um sé að ræða raunverulega aukningu eftir skilgreint upphafstímabil COVID-19 faraldursins,“ segir í skýrslu Barnaverndarstofu.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ofbeldi gegn börnum Barnavernd Réttindi barna Mest lesið Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Margt bendi til þess að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Alvarlegt bílslys í Öræfum Innlent Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Erlent Grímuskylda á Landspítalanum Innlent Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Innlent Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Innlent Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Erlent Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Fleiri fréttir Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Sjá meira