Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Bjarki Sigurðsson skrifar 20. október 2026 08:39 Tvö málanna áttu sér stað við Edinborarhúsið á Ísafirði. Vísir/Samúel Karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir þrjú ofbeldisbrot í Bolungarvík og á Ísafirði. Helmingur dómsins er skilorðsbundinn. Maðurinn kýldi barþjón og dyravörð og veittist að systkinum.
Fyrsta málið varðar líkamsárás á Edinborg bistró á Ísafirði í mars 2025. Lögreglu barst tilkynning um mann sem hafði ráðist á barþjón staðarins. Dyraverðir voru búnir að grípa manninn en barþjónninn sagði manninn hafa verið með ógnandi hegðun í sinn garð fyrr um kvöldið og undanfarnar vikur. Maðurinn játaði að hafa kýlt barþjóninn en hélt því fram að hann hefði ekki hótað honum líkt og barþjónninn vildi meina. Þvert á móti hafi barþjónninn nálgast manninn í íþróttahúsi nokkru áður og sagst ætla að drepa hann. Ákæruvaldið féll frá kröfum um að honum yrði gerð refsing fyrir hótun. Edinborgarhúsið er á Ísafirði.Vísir/Anton Brink Réðst á systkini Annað málið varðaði líkamsárás í Bolungarvík í júní sama ár. Brotaþolar eru systkini og lýsti bróðirinn atvikum þannig að árásarmaðurinn hafi verið að kasta hlutum í hús og bíl þeirra. Hann hafi rætt við manninn sem sagði að þau systkinin væru ógeðsleg og vildi hann þau burt úr bænum. „Maðurinn hafi ráðist á brotaþola A, kýlt hann og bitið í geirvörtuna. Brotaþoli B hafi komið út til þess að stoppa einstaklinginn en hann hafi ráðist á hana og m.a. tekið hana hálstaki,“ segir í dómnum. Brotaþoli hafi byrjað Fyrir dómi sagði maðurinn að hann byggi í næstu götu við brotaþola en þekkti þau ekki. Hann hafi verið ölvaður og reiðst þegar kallað var í áttina að honum þegar hann beygði inn götuna sem þau bjuggu í. Vildi hann meina að hann hafi ekki byrjað að kasta hlutum í húsið fyrr en eftir að hafa átt í samskiptum við brotaþola. „Næst muni ákærði að A hafi slegið til sín. Ákærði hafi náð að komast frá högginu en þurft að verja sig í kjölfarið. A hafi náð að slá ákærða oftar en einu sinni og þá bæði í andlit og maga ákærða. Þá hafi ákærði fengið spark í höfuðið en hann viti ekki hver hafi sparkað,“ segir í dómnum. Maðurinn og systkinin eru nágrannar í BolungarvíkVísir/Arnar Hljóp heim með kúlu og blóðnasir Hann sagði það vel geta hafa gerst að hann hefði bitið brotaþola í fingur og geirvörtu en það hefði hann gert til að losna úr hálstaki sem brotaþoli var með hann í. „Um aðkomu brotaþola B [systur brotaþola] sagði ákærði að þegar komið sé milli tveggja manna sem eigi í slagsmálum geti fólk átt á hættu að verða fyrir. Af hálfu ákærða kom fram að hann myndi raunar ekki eftir því að hún hefði komið á vettvang yfirhöfuð,“ segir í dómnum. Hann hafi því næst hlaupið heim með kúlu á höfði og blóðnasir. Sýknaður fyrir ósönnuð spörk Fyrir dómi viðurkenndi brotaþoli að hann hefði tekið manninn hálstaki til að „svæfa hann“. Maðurinn beit hann og þá sleppti hann takinu. „Ákærði hafi staðið strax upp aftur og hafi brotaþoli A séð „geðveikissvip“ á andliti hans. Ákærði hafi öskrað nokkrum sinnum „eins og af hreinni illsku“ á meðan átökin áttu sér stað en ekkert sagt við brotaþola eftir að þau hófust. Brotaþoli lýsti því fyrir dóminum að atvik hefðu gerst hratt og á einhverjum tímapunkti hafi þeir lent í jörðinni og verið að veltast þar um. Ákærði hafi staðið upp á undan og sparkað í síðu brotaþola A og brjóstkassa,“ segir í dómnum. Maðurinn var á endanum sýknaður fyrir spörkin þar sem ekki tókst að sanna þau. Þá hafi systir brotaþola mætt og reynt að skerast í leikinn. Maðurinn hafi sparkað tvisvar í hana og hlupu þau systkinin aftur inn. Bannaður á staðnum Þriðja málið sneri einnig að líkamsárás við Edinborgarhúsið á Ísafirði, líkt og það fyrsta. Þá var búið að banna hann af staðnum. Hann skvetti bjór á dyravörð og lenti svo í átökum við annan mann fyrir utan staðinn í september 2025. Dyraverðirnir sögðu fyrir dómi að þeir hefðu ekki skipt sér af þeim slagsmálum en lögreglubíll hefði mætt á svæðið. Þá hefði maðurinn hlaupið í burtu. Hann hefði þó snúið aftur og aftur reynt að komast inn á staðinn. „Þá hafi brotaþolinn staðið í hurðinni og varnað ákærða inngöngu með því að loka dyrunum en ákærði hafi náð að setja fót sinn í dyragættina. [...] Brotaþoli hefði ýtt ákærða út til þess að freista þess að ná að loka dyrunum,“ segir í dómnum. Játaði stimpingar Maðurinn hafi fyrst stigið til baka en svo komið af afli í átt að brotaþola og lamið hann í andlitið með hnefanum. Starfsmenn Edinborgarhússins náðu taki á árásarmanninum og á meðan þeir héldu honum reyndi annar maður að ráðast á hann. Þeim tókst þá að stöðva þá árás. Árásarmaðurinn játaði að hafa reynt að komast inn á staðinn og lent í stimpingum við dyraverðina. Hins vegar hafi atvik verið þannig að brotaþoli hafi ýtt honum úr dyragættinni og hann þá ýtt til baka en ekki kýlt frá sér. Mögulega hafi brotaþoli rekið höfuðið í dyrastafinn við það. Hluti skilorðsbundinn Dómurinn taldi fullsannað að maðurinn hafi ráðist á manninn í Bolungarvík og veist að systur mannsins. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir líkamsárás á dyravörðinn. Maðurinn hafði svo játað árásina gegn barþjóninum. Maðurinn hefur áður verið dæmdur fyrir tvær líkamsárásir og fékk hann þá þrjátíu daga skilorðsbundinn dóm. Með brotum sínum rauf hann skilorð og var refsing hans því ákveðin í einu lagi. Hann var dæmdur til að sæta fangelsi í sex mánuði en fresta skal fullnustu þriggja mánaða fangelsisrefsingarinnar og sá hluti hennar falli niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dómsins, haldi hann almennt skilorð. Þá var hann dæmdur til að greiða dyraverðinum tvö hundruð þúsund krónur, sem og útlagðan kostnað og málskostnað.
Ísafjarðarbær Dómsmál Næturlíf Bolungarvík Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Innlent Fleiri fréttir Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Sjá meira