Illvígar nágrannaerjur orðnar að lögreglumáli Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 29. maí 2021 09:30 Þuríður Helga Benediktsdóttir, atvinnumálafulltrúi Skaftárhrepps, og Hreiðar Hermannsson standa nú í deilum um framkvæmdir Hreiðars á jörðinni Orustustöðum. vísir Illvígar deilur landeigenda í Skaftárhreppi hafa tafið framkvæmdir annars þeirra á jörð sinni þar sem hann hyggst reisa fjögur til fimm hundruð manna hótel og umfangsmikla ferðaþjónustustarfsemi.
Uppbygging hótelsins hefur verið samþykkt í deiliskipulagi Skaftárhrepps en landeigandi á næstu jörð segjast hafa efasemdir um umhverfisáhrif framkvæmdanna. Sá er atvinnumálafulltrúi hjá sveitarfélaginu. Mál til skoðunar hjá lögreglu Hreiðar Hermannsson er landeigandi jarðarinnar Orrustustaða austan Kirkjubæjarklausturs, um þrjú þúsund hektara jarðar sem lá í eyði áður en hann keypti hana árið 2013. Þar er hann byrjaður á sex milljarða króna framkvæmdum við hótel og ferðaþjónustusvæði. Hann segir að nágrannar sínir, eigendur jarðarinnar Hraunbóls, hafi ítrekað reynt að tefja framkvæmdirnar, með þokkalegum árangri því þær eru langt á eftir áætlun. Þeir hafi meðal annars grafið veg í sundur sem verktakar á vegum Hreiðars hafa notað til að komast að Orustustöðum, komið upp girðingum þvert yfir veginn og lagt bíl á hann miðjan til að hefta umferð að jörðinni. Hreiðar furðar sig á því að starfsmaður sveitarfélagsins reyni að koma í veg fyrir framkvæmdir sem sveitarfélagið er hlynnt.vísir/EINAR ÁRNASON Nágranni Hreiðars, eigandi Hraunbóls, er atvinnumálafulltrúi Skaftárhrepps, Þuríður Helga Benediktsdóttir. Hreiðari þykir það skjóta skökku við að atvinnumálafulltrúi sveitarfélagsins reyni að koma í veg fyrir uppbyggingu á hótelinu, sem yrði stærsti vinnustaður sveitarfélagsins. Lögmaður Hreiðars segir í samtali við Vísi að allavega tvö mál séu til skoðunar hjá lögreglunni á Suðurlandi vegna skemmda á veginum, sem þeir telja víst að nágrannarnir hafi unnið. Ríkið hefur veitt leyfi fyrir veginum Umræddur vegur liggur frá þjóðveginum að Orustustöðum. Hann fer þó fyrst í gegn um landskika sem er í sameiginlegri eigu jarðanna Hraunbóls og Sléttabóls. Sléttaból er í eigu ríkisins. Hreiðar segir að skemmdir og lokanir á veginum hafi landeigendur Hraunbóls allar unnið í þessu sameiginlega landi þeirra og Sléttabóls. Lögfræðingur Hreiðars segir við Vísi að menn megi ekki vinna skemmdir á vegum í alfaraleið þó þeir liggi í landi þeirra. „Það er alveg ljóst að það má ekki enda hefur lögregla haft afskipti af þessu nokkrum sinnum,“ segir hann. Jarðirnar standa rétt austan Kirkjubæjarklausturs.vísir Sveitarfélagið Skaftárhreppur hefur samþykkt deiliskipulag þar sem gert er ráð fyrir hóteluppbyggingunni. Þá hefur einnig verið samþykkt að leggja betri veg, sem þolir alla þungaumferð, að Orustustöðum. Hann þarf líka að fara í gegn um sameiginlegt land Hraunbóls og Sléttabóls. Ríkið, sem á Sléttaból, hefur þegar samþykkt að vegurinn verði lagður í gegn um landið en eigendur Hraunbóls ekki. Eigendur Hraunbóls hafa kært ýmsar ákvarðanir sveitarstjórnarinnar um að samþykkja bæði deiliskipulagið og veita framkvæmdaleyfi fyrir ýmsu í ferlinu. Vísir ræddi við atvinnufulltrúann og landeigandann Þuríði Helgu um málið í dag. Hún vildi ekki tjá sig mikið um það en vísaði á lögfræðing sinn, sem ekki náðist í við gerð fréttarinnar. „Það verður mál í þessu dómtekið í næstu viku og ég held ég eigi ekki að vera að tjá mig um það núna,“ sagði hún. Aðspurð hvort hún hafi unnið skemmdir á umræddum vegi kvaðst hún ekki vilja tjá sig um það en kom sjónarmiði sínu á framfæri um að Hreiðar væri að ryðjast inn á hennar einkaveg. Þuríður Benediktsdóttir, atvinnumálafulltrúi Skaftárhrepps, býr á Hraunbóli.Einar Árnason Flutningafyrirtæki hafði samband við lögreglu Flutningafyrirtækið Auðbert og Vigfús hefur séð um að flytja efni og annað á Orustustaði fyrir Hermann. Fyritækið tilkynnti það nýlega til lögreglu að slá hafði verið skrúfuð milli tveggja staura í um tveggja metra hæð þvert yfir veginn. Í samtali við Vísi segir Vigfús, annar eigandi fyrirtækisins, að það sé stórhættulegt að koma fyrir slá í ólöglegri hæð þvert yfir veg – hún hefði getað valdið alvarlegu slysi. „Við tilkynntum það til lögreglu, já. Svo talaði ég við landeigendurna sem gerðu þetta og gerði þeim grein fyrir því hve alvarlegt þetta var. Þau útlistuðu þá fyrir mér sína hlið á málinu sem var þannig að þetta væri ekki vegur til þessara nota,“ segir Vigfús. Hér má sjá slána, sem er í sömu hæð og bílstjóri vörubíls.aðsend Ætluðu að opna á næsta ári Stöð 2 fjallaði um framkvæmdir Hreiðars á hótelinu síðasta sumar. Hann er eigandi Stracta Hótels á Hellu og hyggst byggja annað hótel á jörðinni Orustustöðum. Þar vill hann þá bjóða upp á fjölbreytta afþreyingarþjónustu á þrjú þúsund hektara landsvæðinu; vera með vatnagarða, bjóða upp á hestamennsku, gönguferðir og stangveiði. „Þetta er allt hugsað þannig að sem minnst vélknúið yrði hér. Í vatnagörðunum yrðu bara kajakar og bátar sem gengu ekki fyrir vél og á landinu yrði bara umferð rafmagnsfjórhjóla og rafmagnsbíla,“ segir Hreiðar við Vísi. Segir rétta tímann núna til að reisa sex milljarða sveitahótel - Vísir (visir.is) Hann segir að upprunalega hafi staðið til að opna hótelið árið 2022. Ljóst er að ekki verður úr því. „Þeim á Hraunbóli hefur tekist að tefja þetta alveg. Ég held að ég sé ekki búinn með nema svona tíu prósent af framkvæmdinni,“ segir hann. Þó séu búið að klára helstu grunnatriði áður en öll bygging húsnæðisins hefst. „Þau hafa tafið þetta svakalega. Því ég er með erlenda fjárfesta úti og svona og þetta fælir menn auðvitað frá verkefninu að vita af endalausum kærum fram og til baka. Og að það sé atvinnumálafulltrúi sveitarfélagsins sem reynir að koma í veg fyrir atvinnuuppbyggingu og tefja framkvæmdir sem sveitarfélagið vill að verði finnst mér alveg óskiljanlegt.“
Skaftárhreppur Ferðamennska á Íslandi Tengdar fréttir Hraun Skaftárelda skóp nýja sveit eftir Móðuharðindin Skaftáreldum og Móðuharðindunum sem þeim fylgdu hefur verið lýst sem mestu hörmungum Íslandssögunnar. Talið er að fimmtungur þjóðarinnar hafi látist og 75 prósent af bústofni landsmanna fallið af völdum eldgossins í Lakagígum árin 1783-1784. 29. nóvember 2020 22:12 Sagnir um bardaga sem skýra nafn Orustuhóls Orustuhóll er áberandi kennileiti í Skaftárhreppi sem blasir við frá hringveginum skammt austan við bæjahverfið Foss á Síðu. Brunahraun, en svo nefnist hraun Skaftárelda á þessum slóðum, umlykur hólinn á alla kanta. 2. desember 2020 05:05 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira
Hraun Skaftárelda skóp nýja sveit eftir Móðuharðindin Skaftáreldum og Móðuharðindunum sem þeim fylgdu hefur verið lýst sem mestu hörmungum Íslandssögunnar. Talið er að fimmtungur þjóðarinnar hafi látist og 75 prósent af bústofni landsmanna fallið af völdum eldgossins í Lakagígum árin 1783-1784. 29. nóvember 2020 22:12
Sagnir um bardaga sem skýra nafn Orustuhóls Orustuhóll er áberandi kennileiti í Skaftárhreppi sem blasir við frá hringveginum skammt austan við bæjahverfið Foss á Síðu. Brunahraun, en svo nefnist hraun Skaftárelda á þessum slóðum, umlykur hólinn á alla kanta. 2. desember 2020 05:05