Öryggisráðið styður annað fimm ára tímabil Antonio Guterres Heimsljós 11. júní 2021 09:58 UN/Mark Garten António Guterres var meðal annars forsætisráðherra Portúgals, formaður Alþjóðasambands jafnaðarmanna og forstjóri Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt að leggja til að António Guterres skuli kosinn aðalframkvæmdastjóri samtakanna öðru sinni. Samkvæmt frétt Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna er það formlega allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem kýs til embættisins að fengnum ráðleggingum Öryggisráðsins. Guterres er einn í kjöri. „Það hafa verið einstök forréttindi að vera í þjónusta aðildarríkjanna og veita því stórkostlega starfsliði, konum og körlum, sem þau hafa á að skipa undanfarin fjögur og hálft ár á meðan við höfum glímt við svo margslungnar áskoranir,“ sagði Guterres þegar samþykkt öryggisráðsins lá fyrir. Flestir aðalframkvæmdastjórar hafa gegnt embætti í tvö kjörtímabil. Bandaríkin beittu þó neitunarvaldi til að hindra að Boutros Ghail gegndi áfram embætti 1996. António Guterres var meðal annars forsætisráðherra Portúgals, formaður Alþjóðasambands jafnaðarmanna og forstjóri Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) áður en hann var kjörinn aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna til fimm ára, 1. janúar 2017. Hann er sjötíu og tveggja ára, fæddur 1949. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Sameinuðu þjóðirnar Flóttamenn Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Sameinuðu þjóðirnar Flóttamenn Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent