Innlent

Nokkrir sjálfboðaliðar komu hengibrú upp í óbyggðum

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Steinn Hrútur Eiríksson er meðal þeirra sem kom brúni upp.
Steinn Hrútur Eiríksson er meðal þeirra sem kom brúni upp. arnar halldórsson

Hópur sjálfboðaliða gaf vinnu sína og kom upp 29 metra langri hengibrú í óbyggðum í Lónsöræfum. Vinnan tók 22 daga og segir sjálfboðaliði verkefnið eitt það skemmtilegasta sem hann hafi komist í.

Hugmyndina að göngubrúnni fékk Gunnlaugur Benedikt Ólafsson á Stafafelli sem sótti um styrk úr framkvæmdasjóði ferðamálastaða og fékk úthlutaðar sjö milljónir.

„Þetta er hluti af hans hugmynd um að opna gönguleið sem hann kallar Austurstræti. Og er gullfalleg leið þarna inn frá en vandamálið er að þarna eru nokkrar ár sem eru erfiðar,“ sagði Steinn Hrútur Eiríksson, eigandi Brimuxa.

Hluti hópsins við uppsetningu í óbyggðum.Steinn hrútur eiríksson

Uppsetning tók 22 daga

Var því ákveðið að ráðast í smíði á hengibrú yfir Víðidalsá. Styrkurinn dugði fyrir verkstæðisvinnu og byggingarefni en þá stóð uppsetning brúarinnar eftir. Steinn ásamt tólf öðrum settu hana upp í sjálfboðaliðastarfi.

„Við buðumst til að setja hana upp í okkar frítíma. Þetta endaði með einhverjum 22 löngum vinnudögum inni á fjöllum í fyrrasumar með okkar fólki. Slatta af sjálfboðaliðum sem komu með okkur og varð úr þessu yndislegt frí, skemmtilegt.“

Verkefnið var þó krefjandi enda svæðið langt frá byggð og samgöngur engar. Ákveðið var að hafa hengibrúna eins einfalda og hægt væri vegna erfiðra aðstæðna við flutninga langt inn í óbyggðir.

„Ef okkur vantaði eitthvað þá tók fimm tíma að labba að Illakamb. Þaðan þurfti að bera allt. Þannig það tók sex til sjö tíma að komast í næstu búð þannig það var langur dagur ef það vantaði eitthvað,“ sagði Steinn.

Hópurinn borðar kvöldmat eftir langan vinnudag.steinn hrútur eiríksson

Brúin sem er um 29 metra löng og opnar leið austur eftir og inn í dalina sem snúa að Álftafirði. Steinn segir verkefnið eitt það skemmtilegasta sem hann hefur tekið þátt í og er hópurinn hvergi nærri hættur.

„Ég reikna með að við höldum áfram næsta vetur og næsta sumar að ráðast í næstu brú sem verður minni en opnar svæðið enn frekar.“

Við uppsetningu.steinn hrútur eiríksson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×