Ég er Ingó Veðurguð Helgi Áss Grétarsson skrifar 7. júlí 2021 11:00 Það er gott að berjast gegn kynferðisofbeldi í nútímanum, rétt eins og það var virðingarverður málstaður að berjast gegn áhrifum kommúnismans í bandarísku þjóðlífi á 5. og 6. áratug síðustu aldar. Einn stjórnmálamaður á því tímabili, Joseph McCarthy öldungardeildarþingmaður, hagnýtti sér hræðsluna í þjóðfélaginu við kommúnismann, fyrst og fremst til að auka eigin framavonir í stjórnmálum. Ein nálgunin í þeim efnum var að halda yfirheyrslur á Bandaríkjaþingi í beinni sjónvarpsútsendingu þar sem ófáir þjóðfélagsþegnar voru teknir á beinið fyrir að styðja, leynt eða ljóst, hreyfingu kommúnista og hafa þannig óæskileg áhrif á bandarískt stjórnkerfi. Þótt McCarthy væri snjall í að koma fram þá voru flestar ásakanirnar, ef ekki allar, reistar á sandi. Sem betur fer tókst um síðir að fletta ofan af þessum vinnubrögðum og stöðva „nornaveiðarnar“ gegn kommúnismanum í Bandaríkjunum. Hverjar voru afleiðingar McCarthyismans? Um afleiðingar McCarthyismans hafa verið gerðar margar þekktar bandarískar bíómyndir. Sjónarhorn myndanna er yfirleitt um þá sem lentu á svörtum lista fyrir meintan stuðning sinn við baráttumál kommúnista. Að vera svartlistaður þýddi yfirleitt atvinnu- og tekjumissi ásamt því að verða fyrir ýmsu einelti og félagslegu áreiti. Ófáir frábærir listamenn misstu spón úr aski sínum í kjölfar þess að vera svartlistaðir og sumir hrökkluðust úr landi, svo sem eins og Charles Chaplin og Orson Welles, á meðan aðrir reyndu að halda lífi í starfsferli sínum í Bandaríkjunum, svo sem eins og Lena Horne og Dalton Trumbo. Síðastnefndi einstaklingurinn var afar fær handritshöfundur og um ævi hans var gerð kvikmynd árið 2015 sem bar nafnið Trumbo. Ég er Spartacus Til að lifa af í Bandaríkjunum, eftir að hafa verið svartlistaður, skrifaði Trumbo handrit undir ýmsum gervinöfnum og úr urðu vel þekktar kvikmyndir, svo sem eins og Spartacus sem kom út árið 1960 en það var fyrst þá sem tókst að strika nafn Trumbo af svarta listanum. Ég var ekki hár í loftinu þegar ég horfði í fyrsta skipti á Kirk Douglas í hlutverki Spartacusar, skylmingaþrælsins sem leiddi uppreisn gegn Rómverjum. Ógleymanlegt er það atriði í myndinni þegar Rómverjar höfðu barið uppreisnina niður og kölluðu eftir því að Spartacus gæfi sig fram, því eingöngu þá myndu aðrir uppreisnarmenn, fyrir utan að sjálfsögðu Spartacus, halda lífi. Þegar Kirk Douglas reis upp til að gefa sig fram og bjarga þannig félögum sínum, risu aðrir í hópnum einnig upp og kölluðu „Ég er Spartacus!“. Með því móti var ekki hægt að komast að því hver væri foringi uppreisnarmanna og því yrðu Rómverjar annað hvort að drepa þá alla eða engann. Réttarfar Öfga og sakfelling á samfélagsmiðlum Í lok síðustu viku birtu samtökin Öfgar og konur úr hópnum Agn yfirlýsingu í kjölfar þess að tónlistarmaðurinn Ingó Veðurguð var ráðinn til að stýra Brekkusöng á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum næstkomandi ágúst. Í yfirlýsingunni var óskað svara frá Þjóðhátíðarnefnd hvernig það væri réttlætanlegt að meiri virði væri „ráða meinta kynferðisbrotamenn en að virða þolendur?“ Það var augljóst af yfirlýsingunni í hvern verið var að vísa og í framhaldi af því sagði talsmaður samtakanna Öfgar, Tanja Ísfjörð, að verið væri að taka á móti sögum um hinn meinta kynferðisbrotamann. Síðastliðinn laugardag birtu svo samtökin nafnlausar frásagnir af meintu kynferðisofbeldi þjóðþekkts tónlistarmanns sem fjölmiðlar tengdu við Ingó Veðurguð. Hann bar af sér sakir en sl. mánudag var hann afturkallaður, eins og það er nefnt í útilokunarmenningunni, þ.e. hann mun ekki koma fram á Þjóðhátíð um verslunarmannahelgina. Enn einu sinni hafa þau öfl sigrað sem halda réttarhöld á samfélagsmiðlum og byggja sönnunarfærsluna á einhliða frásögnum sem eru svo gerð almenningi kunn með birtingu ásakana án þess nöfn séu birt. Viðkvæðið er þá, „þolendur skulda engum neitt“. Er það stórmannlegt að sitja hjá? Nú þekki ég ekki Ingó Veðurguð persónulega. Gefum okkur samt sem áður að hann hafi með athöfnum sínum brotið á réttindum annarra. Jafnvel þótt svo sé á það ekki að líðast að orðspor einstaklinga sé nítt niður á samfélagsmiðlum þar sem sami aðilinn kærir, rannsakar og dæmir. Óskýrleiki í kæru um hvenær eitthvað gerðist, hvar og hverjir komu að málinu ýtir undir að haldin séu réttarhöld þar sem engrar sanngirni sé gætt í þágu þess sem er sakaður um sitthvað misjafnt. Það er lítilmannlegt að sitja hjá aðgerðarlaus í svona málum, jafnvel þótt viðkvæm séu. Réttarfar miðalda er ekki til eftirbreytni. Öfgar við að uppræta eitt samfélagsmein réttlætir ekki að annað og verra mein sé fest í sessi. Látum ekki ofstækislið pólitískrar rétthugsunar halda áfram að taka hvern einstaklinginn úr umferð með aðferðum útilokunarmenningarinnar. Stöndum fyrir gildi siðaðs samfélags þar sem réttlát málsmeðferð er höfð að leiðarljósi og segjum: „Ég er Ingó Veðurguð“. Höfundur er lögfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helgi Áss Grétarsson Mál Ingólfs Þórarinssonar MeToo Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar