Löngum og vænum hlýindakafla á Norður- og Austurlandi að ljúka Eiður Þór Árnason skrifar 22. júlí 2021 10:35 Rjómablíða hefur leikið við fólk á Austurlandi síðustu vikur. Vísir/Vilhelm Löngum og vænum hlýindakafla á Norður- og Austurlandi fer senn að ljúka. Spáð er háloftalægð um helgina með svalara lofti og bleytu. Sunnan og vestanlands er útlit fyrir vætu af gagni, 10 til 15 mm á sunnudag. Í kjölfarið fer veður þar mjög kólnandi.
Þetta segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hjá Bliku. Svipuð saga er sögð í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. „Í næstu viku leggst vindur smám saman í norðlæga átt og veðurlag snýst við: norðurhelmingurinn fær vætu, en styttir upp syðra. Óhjákvæmilega fer þá hiti lækkandi, ekki síst á Norður- og Austurlandi.“ Að sögn Trausta Jónssonar veðurfræðings er yfirstandandi júlímánuður sá hlýjasti sem mælst hefur á Norður- og Austurlandi á þessari öld. Þá hefur verið óvenjuþurrt í landshlutunum. Það fer hratt kólnandi á Akureyri eftir næstu helgi en í dag er þar spáð 20 stiga hita. Skjáskot Svipuð staða er uppi á Egilsstöðum.Skjáskot Áfram hlýtt í þessari viku Á landinu er spáð hægri suðlægri eða breytilegri átt í dag, þokulofti eða súld á vestanverðu landinu, annars víða léttskýjað en úrkomuminna norðaustanlands. Sunnan og suðaustan 5 til 13 metrar á sekúndu og rigning eða súld með köflum eftir hádegi, en úrkomuminna norðaustanlands. Suðvestlæg átt, 5 til 10 metrar á sekúndu og rigning með köflum á morgun, en úrkomulítið eystra. Hiti 10 til 24 stig, hlýjast norðaustantil. Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings að suðlægar áttir og vætusamt verði sunnan- og vestantil fram yfir helgi. Áfram hlýindi norðaustanlands í þessari viku en þó mest fyrir austan. Í næstu viku fer svo hiti lækkandi. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag og laugardag: Sunnan- eða suðvestan 3-10 m/s og dálítil rigning, en skýjað með köflum og stöku skúrir A-til. Hiti 12 til 22 stig, hlýjast NA-lands. Á sunnudag: Sunnan og suðaustan 8-13 m/s og rigning S- og V-lands, en annars þurrt að kalla. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast eystra. Á mánudag: Norðvestlægar eða vestlægar áttir og víða rigning eða skúrir, en bjart með köflum A-til. Kólnandi veður. Á þriðjudag og miðvikudag: Útlit fyrir fremur svalar norðlægar áttir með vætu á N-verðu landinu, en lengst af þurrviðri og bjart syðra.
Veður Tengdar fréttir Hlýjasti júlímánuður aldarinnar á Norður- og Austurlandi Yfirstandandi júlímánuður er sá hlýjasti sem mælst hefur á Norður- og Austurlandi á þessari öld. Hið sama á við um Miðhálendið en óvenjuhlýtt hefur verið í landshlutunum að undanförnu. 21. júlí 2021 17:16 Yfir 27 stiga hiti á Norðausturhorninu Óhætt er að segja að veðrið hafi leikið við landsmenn á Norðausturhorni landsins í dag. Hiti mældist víða yfir 27 gráðum. 20. júlí 2021 20:17 Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Sjá meira
Hlýjasti júlímánuður aldarinnar á Norður- og Austurlandi Yfirstandandi júlímánuður er sá hlýjasti sem mælst hefur á Norður- og Austurlandi á þessari öld. Hið sama á við um Miðhálendið en óvenjuhlýtt hefur verið í landshlutunum að undanförnu. 21. júlí 2021 17:16
Yfir 27 stiga hiti á Norðausturhorninu Óhætt er að segja að veðrið hafi leikið við landsmenn á Norðausturhorni landsins í dag. Hiti mældist víða yfir 27 gráðum. 20. júlí 2021 20:17