Viðskipti innlent

Þriðja og síðasta vél Play í bili á leið til landsins úr Texas-sólinni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Flugvél Play í hitanum í Amarillo í Texas þar sem hiti hefur verið 30-40 stig undanfarið og ekkert lát á hitanum. Amarillo kemur fyrir í þekktu lagi Tony Christie, Is this the way to Amarillo, þar sem hann syngur um Maríu sem bíður hans í borginni.
Flugvél Play í hitanum í Amarillo í Texas þar sem hiti hefur verið 30-40 stig undanfarið og ekkert lát á hitanum. Amarillo kemur fyrir í þekktu lagi Tony Christie, Is this the way to Amarillo, þar sem hann syngur um Maríu sem bíður hans í borginni.

Þriðja flugvél flugfélagsins PLAY er nú á leið til landsins og mun lenda á Keflavíkurflugvelli síðdegis. Vélin, sem ber skráningarnúmerið TF-PLB, lagði af stað klukkan 10:30 í morgun frá Amarillo í Texas en þar var hún máluð í einkennislitum félagsins. Áætluð lending í Keflavík er klukkan 18:10.

Í tilkynningu frá Play segir að TF-PLB sé af gerðinni A321neo og ein þriggja systurvéla sem PLAY tryggði sér frá AerCap, stærsta flugvélaleigusala í heimi. Vélin er 2018 árgerð, líkt og hinar tvær vélar félagsins TF-AEW og TF-PLA sem komu fyrr í sumar, og tekur 192 farþega.

Félagið á von á þremur flugvélum til viðbótar næsta vor þegar áætlað er að hefja flug til Bandaríkjanna. Þá er áformað að flugflotinn verði kominn í um tíu vélar árið 2023.

„Það er mjög ánægjulegt að systurskip hinna tveggja flugvéla PLAY sé á leið til landsins. Í sumar höfum við hægt og rólega verið að byggja okkur upp og það er allt á áætlun hjá okkur. Þrátt fyrir bakslag í heimsfaraldrinum lítum við björtum augum til framtíðar enda höfum við fengið frábærar móttökur og finnum greinilega að það er ferðahugur í fólki,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri PLAY.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×