Haukarnir missa tvær af bestu körfuboltakonum landsins til útlanda Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. ágúst 2021 11:30 Sara Rún Hinriksdóttir og Þóra Kristín Jónsdóttir voru lykilmenn í Haukaliðinu og Þóra hefur verið leiðtogi liðsins í mörg ár. Vísir/Bára Kvennalið Hauka í körfubolta hefur verið duglegt að styrkja sig á síðustu vikum en nú er ljóst að tvær landsliðskonur yfirgefa félagið fyrir komandi leiktíð.
Landsliðskonurnar Sara Rún Hinriksdóttir og Þóra Kristín Jónsdóttir ætla báðar að reyna fyrir sig erlendis. Báðar eru þær jafnan byrjunarliðsmenn hjá íslenska landsliðinu. Karfan segir frá vistaskiptum þeirra (Þóru hér og Söru hér) en þetta er mikill missir fyrir Haukaliðið sem hafði samið við Helenu Sverrisdóttur á dögunum og einnig fengið til sín hina frábæru Haiden Palmer frá Snæfelli. Sara Rún hefur gert samning við rúmenska félagið Phoenix Constanta en liðið leikur í efstu deild. Sara kom til Hauka eftir áramót eftir að hafa spilað með Leicester í bresku deildinni. Þóra Kristín er að fara í nám í Danmörku og ætlar að spila með AKS Falcon í dönsku úrvalsdeildinni. Sara Rún og Þóra Kristín voru í risastórum hlutverkum hjá Haukaliðinu sem fóru alla leið í úrslitaeinvígið á móti Val. Sara Rún var kosin besti leikmaður deildarinnar og Þóra Kristín var einnig í fimm manna úrvalsliði hennar. Sara Rún var með 16,0 stig, 7,9 fráköst og 4,1 stoðsendingu að meðaltali í 15 leikjum á Íslandsmótinu. Hún skoraði 17,2 stig í leik í úrslitakeppninni. Þóra Kristín var með 9,0 stig, 5,1 frákast og 4,6 stoðsendingar að meðaltali í 27 leikjum á Íslandsmótinu.
Dominos-deild kvenna Haukar Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira