Háskólanemarnir Kristbjörg Eva Andersen Ramos og Sölvi Smárason voru annað tveggja para í fyrsta þættinum og er óhætt að segja stefnumótið hafi verið....
Höskuldarviðvörun (e. spoiler alert)
Tja, ætli töfrandi sé ekki rétta orðið.
Fyrir þá sem ætla sér að horfa á þáttinn en hafa enn ekki séð hann þá mælum við sterklega með því að hætta að lesa hér.
Þegar Sölvi spyr Kristbjörgu út í stjörnumerkin hefjast skemmtilegar umræður.
Eins gott að Sölvi sé ekki sporðdreki...
Eða hvað?
Sölvi treystir Kristbjörgu fyrir því að þegar hann finnur aðeins of mikið á sér þá komi alteregóið hans, Baldur galdur, í heimsókn. Og þegar það gerist geti allt farið úr böndunum.
Þegar líða tekur á stefnumótið, gerist svo þetta...
Baldur galdur leynir greinilega á sér og kann svo sannarlega meira en bara gömlu góðu spilagaldrana.

Eins og sjá má á klippunni hér fyrir ofan kviknaði vissulega á einhverjum blossum þetta kvöld og svifu allskyns töfrar, já og galdrar, yfir vötnum.
Hvort sem fólk trúir á galdra eða ekki var ekki annað hægt en að hrífast með Sölva og Kristbjörgu á þessu skemmtilega og einlæga stefnumóti.
Þó svo að ekki séu heimildir fyrir því að þau séu orðin par þá sást til þeirra á stefnumóti á veitingastaðnum Monkeys síðasta föstudagskvöld.
En til gamans má geta að það er sama kvöld og þátturinn var sýndur á Stöð 2.
Fyrir áhugasama og einlæga Fyrsta bliks aðdáendur er hægt að fylgjast með, og jafnvel sjá skemmtilegt aukaefni, á Instagramsíðu Fyrsta bliksins.
Fyrsta blikið eru stefnumóta- og raunveruleikaþættir sem sýndir eru á Stöð 2.
Í hverjum þættir eru kynntir til leiks fjórir einstaklingar sem áhorfendur fá að kynnast í gegnum sófaspjall sem og spjall við aðstandendur. Sýnt er frá spennunni fyrir stefnumótið og auðvitað stefnumótinu sjálfu sem gerist á veitingastaðnum Monkeys í miðbæ Reykjavíkur.
Þættirnir eru sjö talsins og eru á dagskrá Stöðvar 2 á föstudagskvöldum klukkan 18:55 og koma í kjölfarið á Stöð 2+. Hægt er að kaupa áskrift að Stöð 2+ hér.