Fjórði þáttur seríunnar verður á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 18:50 og munu áhorfendur fá að kynnast fjórum einstaklingum og fylgja þeim á blind stefnumót.
Par 1
Bareigandinn og veitingamaðurinn Sindri hittir arkitektanemann og heimsborgarann Guðrúnu Áslu.
![](https://www.visir.is/i/B517E135C138A636FB60B0DF6E40A6A576DF1D1C666CB29A3721A04B33BDA3E8_713x0.jpg)
Bæði eru þau Sindri og Guðrún miklir fagurkerar og deila ástríðu fyrir fótbolta, góðum mat, víni og góðum kokteilum.
Sindri rekur kokteilbarinn Jungle bar á Austurstræti en ásamt því að hrista saman litríka vökva og vínanda er hann mikið fyrir jaðarsport þar sem adrenalínið fær að flæða um æðarnar.
Guðrún Ásla hefur mest alla tíð sína búið í Skotlandi með fjölskyldu sinni en er þó alltaf með annan fótinn á Hólmavík, þaðan sem hún á ættir sínar að rekja.
![](https://www.visir.is/i/442F4BCE20A43D6C4ADDBCB10054DD8C089A1F4286C092356361AE6A80815382_713x0.jpg)
Það verður því spennandi að fylgjast með því hvort að eitthvað annað en kokteilar hristist saman þetta kvöld.
Par 2
Hin eina og sanna Bylgju-drottning, Sigga Lund, hittir fyrir bókasafnsfræðinginn og grúskarann hann Jón Tryggva.
![](https://www.visir.is/i/005176096BA52D7648E612D9CDD330E1A5A1792BA4F81F7D3CCC5F07613E3BF7_713x0.jpg)
Siggu þarf vart að kynna en rödd hennar hljómaði fyrst á öldum ljósvakans þegar Sigga var aðeins sautján ára gömul.
Hún á því langan og farsælan feril að baki í fjölmiðlum og starfar í dag sem þáttarstjórnandi á Bylgjunni.
Jón Tryggvi segist mikill grúskari en einnig hafa mikinn áhuga á andlegum málefnum og tónlist líkt og hún Sigga.
![](https://www.visir.is/i/BAE47CBB884F3A9B9DF9A9D468BACDD4F04F45A2BEC5A05DED0E9357632E790E_713x0.jpg)
Stundum er sagt að fólk þurfi að líkjast til þess að passa saman og stundum er sagt að andstæður laðist hvor að annarri. Sigga og Jón Tryggvi verða seint sögð líkar týpur en eiga þó eitt og annað sameiginlegt, eins og að mæta í ljósbleiku á fyrsta stefnumótið.
Það fallega við þessa dularfullu ástarformúlu er að við vitum aldrei hvað smellur og hvað ekki svo að það verður gaman að fylgjast með þessum glæsilegu pörum hittast í fyrsta skipti í kvöld.
Hér fyrir neðan má sjá sýnishorn úr þættinum í kvöld.
Fyrir áhugasama og einlæga Fyrsta bliks aðdáendur er hægt að fylgjast með, og jafnvel sjá skemmtilegt aukaefni, á Instagramsíðu Fyrsta bliksins.
![](https://www.visir.is/i/5498E20424B768B1AE43E081FB08BE1FEF2857CB1B084A31C336997D956CDD3F_713x0.jpg)
Fyrsta blikið eru stefnumóta- og raunveruleikaþættir sem sýndir eru á Stöð 2.
Í hverjum þættir eru kynntir til leiks fjórir einstaklingar sem áhorfendur fá að kynnast í gegnum sófaspjall sem og spjall við aðstandendur. Sýnt er frá spennunni fyrir stefnumótið og auðvitað stefnumótinu sjálfu sem gerist á veitingastaðnum Monkeys í miðbæ Reykjavíkur.
Þættirnir eru sjö talsins og eru á dagskrá Stöðvar 2 á föstudagskvöldum klukkan 18:55 og koma í kjölfarið á Stöð 2+. Hægt er að kaupa áskrift að Stöð 2+ hér.