Einn af bestu veiðistöðunum í ánni síðustu árin hefur verið Bergsnös en það er oft alveg ótrúlegt hvað sá staður geymir af stórlaxi. Áinn er í ansi miklu vatni og erfið en ekkert er ómögulegt ef menn þekkja ánna vel. Það kom berlega í ljós í gær þegar vanir veiðimenn við Stóru Laxá voru við Bergsön og lönduðu 10 löxum þar á meðal 95 og 98 sm drekum.

Heildarveiðin í Stóru Laxá á svæði 1-2 er komin í 358 laxa í gær og heildartalan í ánni er 530 laxar í gær og gæti með góðu móti náð 600 löxum eða meira því töluvert er af laxi á nokkrum stöðum. Þetta er síðasta sumarið sem Lax-Á er með ánna en nýr leigutaki tekur við henni fyrir næsta tímabil og eins og hefur verið fjallað um á að fara í myndarlega uppbyggingu við Stóru Laxá á næstu árum og klárt mál að vinsældir hennar í kjölfar þess eiga líklega síst eftir að dvína.