Arnar Daði: Mér fannst við sjálfum okkur verstir Kristín Björk Ingimarsdóttir skrifar 23. september 2021 21:41 Arnar Daði, þjálfari Gróttu Vísir: Vilhelm Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Gróttu, var að vonum svekktur eftir þriggja marka tap á móti FH í Kaplakrika í dag. Lokatölur 25-22. „
Ég er hás. Mér líður ekki vel. Það verður fróðlegt að heyra hvernig spekingar leikgreina þennan leik en mér fannst við sjálfum okkur verstir,“ sagði Arnar Daði í leikslok. „Við fengum fjögur eða fimm tækifæri til að minnka í tvö mörk í seinni hálfleik sem var ótrúlegt miðað við spilamennskuna og hversu oft við töpuðum boltanum, vorum óagaðir og fórum út úr okkar systemi varnarlega. Við vorum ekki nægilega góðir til þess að vinna FH í dag. Það er svona ágætis útskýring.“ Arnar Daði stillti upp 7 á 6 í leiknum á köflum í leiknum og var það Gróttu ekki til framdráttar. „Ég á eftir að leikgreina. 7 á 6 gekk ekkert frábærlega en 6 á 6 gekk heldur ekkert frábærlega í fyrri hálfleik. Við spilum ekkert endilega 7 á 6 upp á sóknina. Þetta snýst líka um varnarskiptingu og fækkun varnarskiptinga. 7 á 6 gekk ekki vel í dag, 6 á 6 einstaklings, bara allt í lagi, maður á mann. 7 á 6, 6 á 6, 5 á 6, þetta var bara ekki nægilega gott.“ Næsti leikur er á móti Fram og vill Arnar Daði sjá strákan eiga góðan leik. „Við verðum að æfa, djöflast og mæta full fókuseraðir. Fyrir okkur skiptir engu máli á móti hverjum við spilum, við verðum alltaf að eiga góðan leik. Við þurfum bara að eiga góðan leik og það er það eina sem ég bið strákana um. Það verður spennandi að sjá hvort þeir verði að ósk minni.“
Grótta Olís-deild karla Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Enski boltinn Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti Fleiri fréttir Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Sjá meira