Handbolti

„Sigurinn nærir“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Einar Jónsson, þjálfari Fram.
Einar Jónsson, þjálfari Fram. vísir

„Ég er fyrst og fremst bara ógeðslega ánægður með að ná í tvö stig,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram, eftir sex marka sigur liðsins gegn Selfyssingum í Olís-deild karla í handbolta í kvöld.

„Það er langt síðan við náðum í tvö stig síðast. Mér fannst frammistaðan á löngum köflum bara mjög góð því það er mjög erfitt að spila á móti Selfyssingum, sérstaklega hérna á Selfossi. Ég hefði viljað skora fleiri mörk því mér fannst við yfirspila þá hérna á köflum, en mér fannst markmaðurinn hjá þeim halda þeim svolítið inni í þessu í seinni hálfleik,“ bætti Einar við.

„Svo vorum við kannski orðnir svolítið þreyttir líka. Erum með lykilmenn sem hafa lítið æft undanfarið sökum meiðsla þannig að á köflum vorum við kærulausir, þreyttir og agalausir á örstuttum kafla. Svo náum við vopnum okkar og klárum þetta nokkuð sannfærandi.“

Framarar höfðu yfirhöndina svo gott sem allan leikinn, en Selfyssingar áttu þó góð áhlaup þar sem þeir ógnuðu forskoti Framara.

„Við fórum kannski bara aftur í að spila það sem við vorum að spila þegar gekk vel. Við vorum klaufalegir í nokkrum brotum sem gerði það að verkum að við vorum svolítið oft einum færri. En á meðan við héldum okkur inni á vellinum, sex á sex, þá fannst mér við hafa tökin á þessu,“ sagði Einar.

„Svo kemur einhver kafli hérna, einhver 3-4 mínútna kafli þar sem hvorugt liðið gat spilað. Boltinn fer bara eitthvað, út og suður og ég veit ekki hvað. En þrátt fyrir kannski tvo kafla þar sem við duttum aðeins niður er ég ánægður með karakterinn að halda haus. Við klárum þetta vel því við erum búnir að tapa einhverjum sex eða sjö í röð og einhver lið hefðu brotnað. Við bognuðum, en brotnuðum ekki, og héldum áfram og sýndum ákveðin gæði. Það er ekkert sjálfgefið að vinna Selfoss hérna á Selfossi og ég er mjög þakklátur fyrir það. Ég sagði við strákana að það eina sem við hugsum um í kvöld væri að ná í tvö stig og það er fyrst og fremst það sem ég er ánægður með. Svo getum við tekið kvöldið eða morgundaginn í það að fara eitthvað að greina það sem hefði mátt fara betur.“

Hann segir þó að það sé ýmislegt jákvætt sem liðið geti tekið með sér inn í framhaldið.

„Við getum tekið frammistöðuna með okkur, sem mér fannst að mestu leyti bara mjög góð, varnarlega, sóknarlega og markvarslan. Svo tökum við það með okkur að sigurinn nærir og það er það sem kemur til með að létta aðeins æfingavikuna fram að næsta leik. Við þurfum virkilega á því að halda og við verðum að vera einbeittir á næsta verkefni því það er stutt í það. En ég hugsa, og vona, að þetta geri mjög mikið fyrir okkur því þetta er búinn að vera erfiður tími,“ sagði Einar að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×