„Mamma mín skutlar mér ennþá á æfingar“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. október 2021 09:30 Jamal Musiala fagnar marki sínu á móti Norður Makedóníu. Enginn yngri hafði skorað fyrir þýska landsliðið í 111 ár. AP/Boris Grdanoski Ungstirni Bayern München og þýska landsliðsins valdi það að spila frekar fyrir Þýskaland en fyrir England. Í vikunni skoraði hann sitt fyrsta mark fyrir þýska landsliðið.
Jamal Musiala var með markinu sínu sá næstyngsti til að skora fyrir þýska landsliðið og sá yngsti í meira en heila öld eða síðan Marius Hiller skoraði árið 1910. Musiala er fæddur í Þýskalandi og þaðan er móðir hans. Faðir hans er aftur á móti enskur. Strákur spilaði með unglingalandsliðum beggja þjóða en valdi á endanum Þýskaland. He made the switch from England Germany on the international stage.But @JamalMusiala still has love for the Three Lions @CraigxMitch went to visit the Bayern forward for #MOTDx. Streaming on @bbciplayer every Thursday from 6pm.#bbcfootball— Match of the Day (@BBCMOTD) October 14, 2021 Markið sem hann skoraði kom í leik á móti Norður Makedóníu en með sigri þar þá tryggði þýska landsliðið sér sigur í riðli Íslands og um leið sæti á HM í Katar, fyrst Evrópuþjóða. Breska ríkisútvarpið fjallar um leikmanninn sem enska landsliðið missti af og ræðir við hann um ferilinn til þessa. Musiala er þegar búinn að spila 48 leiki fyrir stórlið Bayern og er kominn með ellefu mörk og einn þýskan meistaratitil. Hann er því þegar búinn að afreka mikið þrátt fyrir ungan aldur. Móðir hans var við nám við háskólann í Southampton á sínum tíma og hann æfði aðeins með Southampton liðinu. Þar kom Chelsea auga á hann og buðu honum á reynslu sem hann samþykkti. Very happy about my first international goal and to have qualified for World Cup 2022 pic.twitter.com/XEB578aHXi— Jamal Musiala (@JamalMusiala) October 11, 2021 Hann kunni ekki enskuna á þessum tíma en náði henni á sex mánuðum. Musiala var í átta ár hjá Chelsea og fékk á þeim tíma tækifæri með unglingalandsliðum Englands. Hann náði reyndar að spila fyrir sextán ára landslið Englands og Þýskalands. Hann valdi hins vegar að fara aftur til Þýskalands og ganga til liðs við Bayern München þegar hann var sextán ára gamall. „Bayern München setti fram gott plan yfir það hvernig ég myndi fara upp aldursflokkana og lagði áherslu á að það yrði ekki gert í neinum flýti. Ég treysti því sem þeir sögðu. Núna er þetta mjög þægilegt,“ sagði Jamal Musiala. „Ég var mjög stressaður til að byrja með enda horfðu bara á stjörnuleikmenn liðsins þá. Þú ert alltaf að rekast á Robert Lewandowski og það er ekkert eðlilegt,“ sagði Musiala. „Eftir ákveðinn tíma þá var það bara venjan og ég get sagt að þeir séu orðnir vinir mínir núna,“ sagði Musiala. Jamal Musiala inscrit son premier but avec la Mannschaft, le quatrième de son équipe face à Macédoine du Nord. https://t.co/NuYDf8KQts #lequipeFOOT pic.twitter.com/ATWnr7kE2B— la chaine L'Équipe (@lachainelequipe) October 11, 2021 Musiala er ekki orðinn nítján ára en ætti samt að vera kominn með bílpróf. Svo er þó ekki. „Mamma mín skutlar mér ennþá á æfingarnar og nær í mig líka. Það er í góðu lagi. Það er þægilegt en ég er að vinna í að fá bílprófið. Ég ætti að ná því á næstu vikum,“ sagði Musiala. „Stundum vildi ég helst ekki hugsa um það því þetta var mjög erfið ákvörðun. Á endanum gerði ég það sem ég taldi vera best fyrir mig og valdi hvar mér myndi líða best. Ég valdi Þýskaland og það er ekkert hægt að horfa til baka með það,“ sagði Musiala. „Það er allt á réttri leið. Mér finnst ég hafa tekið rétta ákvörðun þrátt fyrir að Englandi hafi komist alla leið í úrslitaleikinn á EM. Ég sé ekki eftir neinu,“ sagði Musiala. Það má lesa alla umfjöllunina um hann hér.
Þýski boltinn HM 2022 í Katar Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Sjá meira