Chilwell gæti verið frá út tímabilið Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 24. nóvember 2021 18:01 Ben Chilwell var tekinn af velli í stórsigri Chelsea í gær vegna meiðsla. Óttast er að hann gæti misst af því sem eftir er af tímabilinu. Chris Brunskill/Fantasista/Getty Images Ben Chilwell, vinstri bakvörður enska knattspyrnufélagsins Chelsea, gæti verið frá út tímabilið eftir að leikmaðurinn fór af velli í 4-0 stórsigri liðsins gegn Juventus í Meistaradeild Evrópu í gær.
Óttast er að Chilwell hafi orðið fyrir meiðslum á fremra krossbandi, en leikmaðurinn fann til í hnénu í leiknum í gær og var tekinn af velli þegar tæpar tuttugu mínútur voru til leiksloka. Hann fer í myndatöku í dag og í kjölfarið á því verður hægt að meta hversu alvarleg meiðslin eru. Ef rétt reynist að fremra krossbandið hafi skaddast þá gæti þessi 24 ára bakvörður misst af restinni af tímabilinu. Eftir sigur liðsins í gær sagðist Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, hafa áhyggjur af stöðu mála hjá bakverðinum unga. Sérstakelga þar sem hann hefur verið sjóðheitur undanfarið, líkt og Reece James í hægri bakverðinum. „Þeir hafa báðir verið með mikið sjálfstraust og mikil gæði upp á síðkastið,“ sagði Tuchel. „Chilwell var sárþjáður en honum líður betur núna. Við verðum að krossa fingur og vona að meiðslin séu ekki of alvarleg.“ Þá fór N'Golo Kante einnig af velli í gær vegna hnémeiðsla og hann gæti misst af stórleik Chelsea gegn Manchester United næstkomandi sunnudag.
Enski boltinn Mest lesið Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Fótbolti Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Íslenski boltinn Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Fótbolti Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Formúla 1 „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Messi að kaupa hundrað prósent hlut í spænsku félagi Fótbolti Tekur á sig gagnrýni svo aðrir fái hana ekki Sport Fleiri fréttir Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Sjá meira