Innlent

Lækna­­fé­lagið styður lækninn en segir lengd máls­­með­­ferðarinnar baga­­lega

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Stjórnendur Landspítalans funda með landlækni í dag.
Stjórnendur Landspítalans funda með landlækni í dag. Vísir/Vilhelm

Læknafélag Íslands segist styðja félagsmann sinn, sem grunaður er um alvarlega vanrækslu í starfi sem talin eru hafa leitt til dauðsfalla sjúklinga hans. Hins vegar sé óvissa sem fylgi langri málsmeðferð bagaleg fyrir alla. Stjórnendur Landspítalans munu funda með landlækni vegna málsins í dag.

Lögregla telur rökstuddan grun um að andlát sex sjúkling Skúla Tómasar Gunnlaugssonar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hafi borið að með ótímabærum og saknæmum hætti. Dauðsföll fimm annarra sjúklinga eru til skoðunar hjá lögreglu en Skúli er talinn hafa skráð sjúklinga sína - að tilefnislausu.

Læknafélag Íslands gaf ekki kost á viðtali í dag en segist í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu hafa fylgst með framgangi málsins. Félagið styðji félagsmann sem málinu tengist eins og því beri. Þá sé málið í höndum þeirra yfirvalda sem eigi að annast mál sem þessi. Læknafélagið treystir því að niðurstaða fáist í málið sem fyrst en að sú óvissa sem fylgi langri málsmeðferð sé bagaleg fyrir alla málsaðila.

Skúli Tómas lét af störfum hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir að athugun hófst á störfum hans í nóvember 2019. Landlæknir skilaði svartri og ítarlegri skýrslu um störf hans, skýrslu sem spannar á fimmta tug blaðsíðna. 

Í framhaldinu var hann sviptur starfsleyfi sínu. Hann fór þá í endurmenntun og endurhæfingu hjá Landspítala og fékk nýverið takmarkað endurnýjað starfsleyfi. Takmarkað starfsleyfi þýðir að viðkomandi er undir sérstöku eftirliti og getur þýtt að hann fái ekki að sinna ákveðnum sjúklingum og/eða fær ekki að ávísa lyfjum. Fréttastofa hefur hins vegar ekki fengið upplýsingar um hvaða takmarkanir eru á starfsleyfi Skúla.

Landspítalinn gat ekki veitt viðtal vegna málsins í dag en segir að umfang brotanna hafi komið í opna skjöldu. Engu að síður var greint frá því í ágúst að sex fjölskyldum hafi verið skipaður réttargæslumaður og í febrúar lá fyrir hin umfangsmikla skýrsla landlæknis. Landlæknir hefur kallað eftir gögnum frá lögreglu og mun funda með stjórnendum Landspítalans í dag, þar sem framhaldið verður ákveðið.


Tengdar fréttir

Landspítalinn hafði ekki vitneskju um umfang meintra brota

Landspítalinn hafði ekki vitneskju um hversu umfangsmikil rannsóknin er á hendur lækninum Skúla Tómasi Gunnlaugssyni, fyrr en fréttir af henni birtust í dag. Skúli Tómas er grunaður um röð alvarlegra mistaka í starfi hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sem eiga að hafa leitt til dauðsfalla sjúklinga hans. Hann hefur að undanförnu starfað á Landspítala.

Þrír starfsmenn HSS kærðir fyrir vanrækslu

Þrír starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja hafa verið kærðir til lögreglu vegna meintrar vanrækslu, sem sögð er hafa leitt til andláts að minnsta kosti eins sjúklings. Landlæknir telur að um röð mistaka og hirðuleysi hafi verið að ræða, ekki síst vegna ómeðhöndlaðra sýkinga, sem sé möguleg dánarorsök.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×