Skreytum hús: Umturnaði vinnurými fyrir fallegan málstað Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 1. desember 2021 07:01 Síðasti þátturinn af Skreytum hús þáttaröð þrjú var góðgerðarþáttur. Skreytum hús Þórunn og Fríða mynda saman Mía Magic sem starfar að málefnum langveikra barna. Soffía stóðst ekki mátið að aðstoða þessar hetjur í lokaþættinum af Skreytum hús.
Þeim Þórunni og Fríður vantar að taka í gegn vinnuaðstöðu sem þær voru að fá í Íshúsinu í Hafnarfirði. Eins og fjallað hefur verið um hér á Vísi byrjaði Míu-ævintýrið á því að Þórunn skrifaði barnabók fyrir börn sem þurfa á lyfjabrunni að halda. Öll börn á Landspítalanum sem fara í þá aðgerð fá bókin að gjöf og á einnig að þýða hana yfir á fleiri tungumál. Þórunn og Fríða eiga báðar langveik börn og þekkja því vel til málefna langveikra barna og foreldra þeirra. Fyrsta gjafaboxið gerði Þórunn fyrir litla einstaka vinkonu sem hafði dvalið í ár á Barnaspítalanum. „Eftir það höfum við gefið tvö box á mánuði, eitt til barna og eitt til foreldra. Fyrirtæki hjálpa okkur að setja ofan í boxin vörur.“ Boxin eru sniðin að aldri og áhugasviði langveika barnsins. Foreldrarnir fá dekur og annað fallegt. Árlega er svo Míuverðlaununum úthlutað til einstaklings hér á landi sem sinnir langveikum börnum í sínu starfi. Vinnuaðstaða Þórunnar og Fríðu verður því nýtt í skrifstofuvinnu og styrktarsöfnun og einnig til innpökkunar á Míuboxunum sem fyrirtæki styrkja með fallegum vörum. Þáttinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan og við mælum með því að þú horfir á þáttinn áður en þú lest áfram, þar sem lokaútkomuna má finna neðar í greininni. Klippa: Skreytum hús - Góðgerðarverkefni fyrir Mía Magic „Ég var búin að leggja undir mig heilt herbergi og stofuna,“ segir Þórunn um vinnuaðstöðuna fram að þessu. Þetta er fyrsta skrifstofuaðstaða Míuverkefnisins en þær hafa hingað til unnið að þessu á eigin heimili. „Ástæðan fyrir rýminu er að komast aðeins út af heimilinu og líka geyma allt sem þarf að geyma,“ segir Þórunn. Rýmið fyrir breytingarnar.Skreytum hús „Við þurfum eiginlega að hafa einhverja aðstöðu þar sem við getum komið inn hvenær sem er þegar við þurfum. Mjög oft þurfum við að hlaupa og sækja börn og fara með upp á spítala og fara með til læknis.“ Rýmið fyrir breytingarnar.Skreytum hús Soffía Dögg vildi hafa góða vinnuaðstöðu fremst með geymsluplássi undir og hillur fyrri útstillingar og vörur aftar í rýminu. Það gjörbreytti öllu rýminu að mála það allt í ljósum og hlýjum lit og setja upp ný ljós. Rýmið eftir breytingar.Skreytum hús Gólfið í íshúsinu er flotað og lakkað grátt svo Soffía ákvað að reyna að þekja sem mest að gólfinu á auðveldan hátt. Endaði hún á að velja mottu sem er tveir metrar að breidd og þriggja metra löng. „Ég er alltaf að tala um mottur en það er fátt sem getur breytt rýminu jafn mikið og falleg og góð motta. Þetta er líka ein af þessum litlu stóru breytingum sem við getum gert á plássi eins og þessu.“ Rýmið eftir breytingar.Skreytum hús Vá, þetta er geðveikt, sagði Þórunn þegar hún sá rýmið eftir breytingarnar. „Þetta er allt annað,“ sagði Fríða spennt. „Ég er í sjokki.“ Rýmið eftir breytingar.Skreytum hús Þórunn segir að rýmið sé orðið mun flottara en hún bjóst við. „Ég held að við náum að skipuleggja okkur miklu betur.“ Rýmið eftir breytingar.Skreytum hús Allt sem Soffía notaði í framkvæmdirnar fékk Mia Magic að gjöf frá samstarfsaðilum Skreytum hús þáttanna. Hillurnar voru svo fylltar með gjöfunum sem styrktaraðilar Miu Magic gefa fyrir Míuboxin. „Það munar svo miklu fyrir okkur að fá alla þessa aðstoð,“ segir Fríða. Soffía Dögg gerði „moodboard“ fyrir breytingarnar til þess að sjá betur fyrir sér lokaútkomuna.Skreytum hús Í ítarlegri bloggfærslu á síðunni Skreytum hús er hægt að finna frekari upplýsingar um breytingarnar og þær vörur sem Soffía Dögg notaði til þess að breyta eigninni. Hægt er að sjá breytinguna og horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni. Þættirnir eru sýndir á miðvikudögum hér á Vísi og fara samhliða því inn á Stöð 2+.
Tíska og hönnun Skreytum hús Hús og heimili Börn og uppeldi Tengdar fréttir Þórunn Eva er framúrskarandi ungur Íslendingur Þórunn Eva G. Pálsdóttir hlaut titilinn Framúrskarandi ungur Íslendingur árið 2021 í gær. Þórunn Eva hefur vakið athygli á málefnum langveikra barna og aðstandenda þeirra. Hún hefur skrifað bók um efnið, stofnað góðgerðarsamtök og stendur á bak við Míuverðlaunin. 25. nóvember 2021 18:05 Gunnlaugur Sigfússon barnahjartalæknir hlaut Míuverðlaunin Míuverðlaunin voru afhent í annað sinn í gær við hátíðlega athöfn í Cava salnum. 42 heilbrigðisstarfsmenn sem vinna með langveikum börnum voru heiðraðir á viðburðinum. 22. október 2021 09:45 „Ég þoldi ekki þetta óréttlæti“ Með hjálp íslensku heimildarmyndarinnar Human Timebombs hafa safnast yfir 600 milljónir króna í rannsóknir á AHC taugasjúkdómnum á síðustu fimm árum. Kvikmyndagerðakonan Ágústa Fanney Snorradóttir leikstýrði myndinni. 20. september 2020 20:16 Upplifir langveika syni sína öruggari í þjóðfélaginu núna Þórunn Eva er móðir tveggja langveikra drengja en þeir eru báðir með genagalla á ónæmiskerfinu. Hún upplifir öryggi nú þegar allt þjóðfélagið passar vel upp á hreinlæti og handþvott. 2. apríl 2020 11:28 „Ég vildi að honum myndi líða vel með þetta“ Þórunn Eva Guðbjargar Thapa, móðir tveggja langveikra drengja, gerði bók til að hjálpa börnum sem þurfa að fá lyfjabrunn vegna veikinda. 9. febrúar 2020 07:00 Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fleiri fréttir Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Sjá meira
Þórunn Eva er framúrskarandi ungur Íslendingur Þórunn Eva G. Pálsdóttir hlaut titilinn Framúrskarandi ungur Íslendingur árið 2021 í gær. Þórunn Eva hefur vakið athygli á málefnum langveikra barna og aðstandenda þeirra. Hún hefur skrifað bók um efnið, stofnað góðgerðarsamtök og stendur á bak við Míuverðlaunin. 25. nóvember 2021 18:05
Gunnlaugur Sigfússon barnahjartalæknir hlaut Míuverðlaunin Míuverðlaunin voru afhent í annað sinn í gær við hátíðlega athöfn í Cava salnum. 42 heilbrigðisstarfsmenn sem vinna með langveikum börnum voru heiðraðir á viðburðinum. 22. október 2021 09:45
„Ég þoldi ekki þetta óréttlæti“ Með hjálp íslensku heimildarmyndarinnar Human Timebombs hafa safnast yfir 600 milljónir króna í rannsóknir á AHC taugasjúkdómnum á síðustu fimm árum. Kvikmyndagerðakonan Ágústa Fanney Snorradóttir leikstýrði myndinni. 20. september 2020 20:16
Upplifir langveika syni sína öruggari í þjóðfélaginu núna Þórunn Eva er móðir tveggja langveikra drengja en þeir eru báðir með genagalla á ónæmiskerfinu. Hún upplifir öryggi nú þegar allt þjóðfélagið passar vel upp á hreinlæti og handþvott. 2. apríl 2020 11:28
„Ég vildi að honum myndi líða vel með þetta“ Þórunn Eva Guðbjargar Thapa, móðir tveggja langveikra drengja, gerði bók til að hjálpa börnum sem þurfa að fá lyfjabrunn vegna veikinda. 9. febrúar 2020 07:00