Varnarleikur Leeds áfram í molum og Arsenal gekk á lagið Arnar Geir Halldórsson skrifar 18. desember 2021 19:27 Sjóðheitur. vísir/Getty Arsenal vann öruggan útisigur á löskuðu liði Leeds United í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Lærisveinar Mikel Arteta höfðu unnið tvo leiki í röð þegar kom að leik dagsins á meðan lærisveinar Marcelo Bielsa vonuðust til að svara 7-0 tapi gegn Man City í síðustu umferð en mikil meiðsli hafa herjað á leikmannahóp Leeds að undanförnu. Arsenal byrjaði leikinn af miklum krafti og hafði talsverða yfirburði í fyrri hálfleik. Þá yfirburðu nýttu þeir vel og skoruðu þrjú mörk en Brasilíumaðurinn Gabriel Martinelli sá um að koma Arsenal í 0-2 á fyrsta hálftíma leiksins. Illan Meslier í marki Leeds varði fjölda skota í fyrri hálfleik en honum tókst ekki að koma í veg fyrir að Bukayo Saka kæmi Arsenal í 0-3 á 42.mínútu. Það var allt annað að sjá til Leeds í síðari hálfleik og þeim tókst að klóra í bakkann með marki úr vítaspyrnu á 75.mínútu. Það skoraði Raphinha en vítaspyrnan var dæmd eftir glórulausa varnartilburði Ben White í vítateig Arsenal. Annan leikinn í röð kom Emile Smith Rowe inn af bekknum hjá Arsenal og skoraði því hann gerði síðasta mark leiksins á 84.mínútu og innsiglaði öruggan sigur Arsenal sem styrkti þar með stöðu sína í 4.sæti deildarinnar. Enski boltinn