Bók seðlabankastjóra uppseld hjá útgefanda Jakob Bjarnar skrifar 17. desember 2021 14:56 Ásakanir um ritstuld eru Ásgeiri Jónssyni til nokkurs ama en hann getur huggað sig við að deilan hefur ekki haft neikvæð áhrif á bóksöluna, hún er ofar vonum. vísir/vilhelm Jónas Sigurgeirsson forleggjari hjá Almenna bókafélaginu er ánægður með ganginn í sölu á bók Dr. Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra, Eyjunni hans Ingólfs.
Hann segist nú sjá fram á að 1. prentun bókarinnar sé við að verða uppseld hjá útgefanda. Og að önnur prentun bókarinnar er væntanleg strax eftir helgi. Það er haft til marks um að bækur hafi náð markmiðum útgefanda, einskonar þumalputtaregla um að útgáfan sé vel heppnuð að teknu tilliti til markaðar. „Uppseld hjá útgefanda“ segir í sjálfu sér ekki mikið en gefur glögglega til kynna eftirspurn þó ekki sé hægt að fullyrða um smásöluna út frá þeirri stöðu. „Ég er mjög ánægður með ganginn í þessu,“ segir Jónas í samtali við Vísi. Bókin hefur reyndar ekki ratað á lista yfir mest seldu fræðibækurnar eins og glöggir lesendur Vísis ráku augu í þegar birtur var bóksölulisti yfir söluna 7. til 13. desember. En sá listi tekur aðeins til þeirra tíu söluhæstu. Bækurnar sem hafa stolið senunni í þessu jólabókaflóði. Eyjan hans Ingólfs komst í sviðsljósið eftir að Dr. Bergsveinn Birgisson, rithöfundur og fræðimaður, taldi sig greina í henni efni sem hann ætlar að hafi verið tekið úr bók hans Leitinni að svarta víkingnum án þess að geta heimilda. Þessu hafnar Ásgeir. Málið hefur vakið mikla athygli, er seðlabankastjóra til nokkurs ama. Í athugasemd sem hann skrifar á Facebook-vegg sinn, þar sem hann gerir athugasemd við að eitt atriði sem Bergsveinn týnir til máli sínu til stuðnings í greinargerð standist ekki, segir hann þetta heldur leiðigjarnt. En, „ef þetta verður allt til þess að fleiri lesi bók mína – þá er ekki allt til ónýtis.“ Og hann getur nú huggað sig við að deilan virðist ætla að auka áhuga á bókinni. Siðanefnd Háskóla Íslands hefur tekið málið til umfjöllunar en Ásgeir vinnur nú að greinargerð þar sem hann hyggst svara ásökunum Bergsveins. Hér ofar má sjá umrædda athugasemd Ásgeirs. Bergsveinn hefur fyrir sína parta gengist fúslega við því að ábending Ásgeirs hvað varðar þetta tiltekna atriði sé réttmæt: „Þessa yfirsjón játa ég fúslega, en hún er þó smáatriði í hinu stóra samhengi.“
Bókaútgáfa Bergsveinn Birgisson sakar Ásgeir Jónsson um ritstuld Höfundarréttur Tengdar fréttir „Ég hef aldrei áður verið vændur um stuld“ Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri hefur brugðist við fréttaflutningi af meintum hugverkastuldi og ásökunum Bergsveins Birgissonar, segist hafa lesið Leitina að svarta víkingnum en hún sé ekki hefðbundin sagnfræði. 10. desember 2021 10:46 Sakar seðlabankastjóra um ritstuld Bergsveinn Birgisson, rithöfundur og fræðimaður, telur engan vafa á leika að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, hafi í veigamiklum atriðum stuðst við bók hans Leitina að svarta víkingnum í bók sinni Eyjan hans Ingólfs. Án þess að geta heimilda. Það heitir rit- og hugmyndastuldur. 8. desember 2021 15:52 Mest lesið Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Lífið Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Lífið Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Lífið Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Lífið Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Lífið Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Lífið Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Lífið Fleiri fréttir „Versta hljómsveit Íslandssögunnar“ segir rappara vera með sig á heilanum Kanónur í jólakósí „Djúp menning sem hefur átt sér stað og enginn telur sig ábyrgan“ Brjálað að gera á „Brjálað að gera“ Vilja minnka allt þetta neikvæða suð Munur er á manviti og mannviti Vatn og brauð íslenskra fanga: Hvað elda menn í íslenskum fangelsum? Gefur út bók um reynsluna af því að vera útilokuð Einn heitasti listamaður landsins heldur þræði Sýnilegri í senunni á meðgöngunni Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Þetta er fólkið sem fær listamannalaun 2026 Björk og James Merry opna sýningar á Listahátíð í Reykjavík Bjó hjá Trumpara í búddistabæ í Kaliforníu Lyktarlítill dans, Lux og „metnaðarlaus stefna í íslensku“ Skilaði Kommúnistaávarpinu hálfri öld of seint en sleppur við sekt „Mér líður eins og plottið í bókinni sé að raungerast“ Helgi snýr heim: „Laus við leiðindin sem bjuggu þetta til“ Jón Ásgeirsson tónskáld er látinn Fimm fáránlegar biðraðir Íslendinga Þrír metnir hæfir til að stýra Óperunni Frumsýning á Vísi: Skoppa og Skrítla bjóða krökkunum í jólapartý Lögðu til að Gunnar og Halldór deildu Nóbelsverðlaununum Bubba svarað og „barnaleg vitleysa“ í Borgó George R. R. Martin á Íslandi: „Það er smá svalt hérna“ Skálað fyrir glæsilegustu dönsurum landsins og Jónsa úr Sigur Rós Krafa um betri ensku en íslensku reyndust mistök Magnús nýr formaður stjórnar Leikfélags Reykjavíkur „Erfiðasti skóli sem ég hef farið í“ Floppin í haust og sjónvarpslaus sjónvarpsverðlaun Sjá meira
„Ég hef aldrei áður verið vændur um stuld“ Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri hefur brugðist við fréttaflutningi af meintum hugverkastuldi og ásökunum Bergsveins Birgissonar, segist hafa lesið Leitina að svarta víkingnum en hún sé ekki hefðbundin sagnfræði. 10. desember 2021 10:46
Sakar seðlabankastjóra um ritstuld Bergsveinn Birgisson, rithöfundur og fræðimaður, telur engan vafa á leika að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, hafi í veigamiklum atriðum stuðst við bók hans Leitina að svarta víkingnum í bók sinni Eyjan hans Ingólfs. Án þess að geta heimilda. Það heitir rit- og hugmyndastuldur. 8. desember 2021 15:52