Óhætt er að segja að 2021 hafi verið árið sem fyrirtæki og einstaklingar reyndu að lifa með veirunni, með misgóðum árangri, og tókst sumum atvinnugreinum að færa sig nær einhverju sem gæti kallast eðlilegt horf.
Endurreisn ferðaþjónustunnar hófst fyrir alvöru eftir gífurlegt áfall í fyrra en þó er enn langt í að atvinnugreinin nái fyrri styrk sínum. Flugfélagið Play hóf sig til flugs í júní eftir að hafa reynt að bíða af sér faraldurinn og fjölgaði flugferðum og áfangastöðum eftir því sem leið á árið. Ljóst er að tilkoma lággjaldaflugfélagsins hefur mikla þýðingu fyrir íslenska ferðaþjónustu og vonast margir eftir að því takist að fylla í það skarð sem WOW air skildi eftir árið 2019.
Miklar hækkanir á hlutabréfamörkuðum einkenndu meðal annars árið og tölvuárásir urðu sífellt stærri ógn við rekstur fyrirtækja. Framboðsskortur á hinum ýmsu vörum og aukin verðbólga setti mark sitt á líf fólks og fyrirtækja á meðan efnahagskerfi og flóknar aðfangakeðjur glímdu við að koma framleiðslu í eðlilegt horf og bregðast við breytingum á neyslumynstri.

Ár fasteignasala
Íslendingar voru ekki lausir við verðbólgudrauginn sem var hér ekki síst drifinn áfram af miklum hækkunum á húsnæðismarkaði. Verð og eftirspurn leitaði upp á við í kjölfar vaxtalækkana í fyrra og hélt sú þróun áfram á þessu ári.
Samhliða þessu sást mikill samdráttur í framboði á eignum á Suðvesturhorninu sem ýtti undir örvæntingu líklegra kaupenda. Birtist það meðal annars í sífellt styttri meðalsölutíma íbúða sem seljast nú oftar en ekki yfir ásettu verði.
Inn í þetta blönduðust svo deilur um það hvort sveitarfélög væru að gera nóg til að svara eftirspurn eftir nýbyggingum og áhyggjur af hærri greiðslubyrði húsnæðislána þegar Seðlabankinn byrjaði að hækka stýrivexti á ný.
Einnig voru stór viðskipti á borð við sölu ríkisins á 35 prósenta hlut sínum í Íslandsbanka og sala Símans á Mílu áberandi í fjölmiðlaumfjöllun og þjóðfélagsumræðu á árinu sem er að líða.
Í þessari stuttu yfirferð verður þó ekki reynt að taka saman stærstu eða mikilvægustu viðskiptafréttirnar frá liðnu ári heldur ræður áhugi lesenda hér för. Listanum er því ætlað að gefa góða mynd af því hvað lesendum Vísis þótti áhugaverðast og eftirtektarverðast í heimi viðskiptanna.
Litlu lóðaframboði um að kenna
Fasteignamarkaðurinn hefur verið á miklu flugi á árinu líkt og áður segir, eftirspurn mikil og áhugi fólk á hinum ýmsu vendingum í hæstu hæðum. Það er því engin furða að vinsælasta viðskiptafrétt ársins varði þróunina á húsnæðisverði.
Í byrjun ágúst hafði verð hækkað um tíu prósent seinasta hálfa árið og um sextán prósent á síðustu tólf mánuðum. Vísir ræddi þá við Pál Pálsson fasteignasala sem sagði alla fasteignasala á Íslandi upplifa skort á framboði fasteigna og dæmi um að tuttugu til þrjátíu manns mæti á opið hús.
Páll sagði lítið framboð nýbygginga og lóða frekar en lága vexti vera aðalástæðu hækkandi fasteignaverðs sem væri ekki lengur í takt við launaþróun.
„Menn hafa verið að rífast um þetta, bæði Samtök iðnaðarins, seðlabankastjóri og Reykjavíkurborg. Vegna þess að seðlabankastjóri og Samtök iðnaðarins hafa verið að benda á það að sveitarfélögin séu ekki að standa sig nógu vel í framboði. Þeir eru ekki með nógu mikið af vörum á markaði. Ekki nógu mikið af eignum,“ sagði Páll. Sveitarfélög á borð við Reykjavíkurborg hafa frekar kennt vaxtalækkunum um og borgarstjórn sagt að síðustu ár hafi verið metár í uppbyggingu.
Spöruðu lítið á því að bóka sér flug með lággjaldaflugfélaginu
Jómfrúarflug Play fór í loftið í júní og sýndu ferðaglaðir Íslendingar flugfélaginu strax mikinn áhuga. Erfitt getur reynst að koma eins flóknum rekstri á koppinn án þess að lenda í hnökrum sem valda óánægju viðskiptavina.
Slíkt mál kom upp í júlí þegar þjóðþekkti leikstjórinn og handritsöfundurinn Ragnar Bragason lýsti því yfir að hann ætlaði að sniðganga flugfélagið. Ástæðan var sú að ungum sonum hans hafði verið meinað að fara um borð í vél Play til Kaupmannahafnar. Að sögn Play var um mannleg mistök að ræða.
Hrakfarirnar byrjuðu þegar drengirnir áttuðu sig á því að vegabréfin þeirra höfðu runnið út fyrr í vikunni. Eftir umleitan bræðranna fengust þær upplýsingar hjá lögreglu að nóg væri að vera með gild persónuskilríki í ferðum innan Schengen-svæðisins og því ætti ökuskírteini að duga til að þeim yrði hleypt um borð í vélina til Danmerkur.
Þegar þeir mættu í innritun á Keflavíkurflugvelli hafnaði starfsfólk Play því alfarið að nóg væri að framvísa ökuskírteini og vísað til reglna flugfélagsins, að sögn Ragnars.
Enduðu bræðurnir á því að punga út á annað hundrað þúsund krónum fyrir sæti um borð í næstu flugvél Icelandair til Danmerkur. Play baðst síðar afsökunar á mistökunum.
Veðjaði á veðlán
Það vakti athygli í janúar þegar fregnir bárust af því að Kristján Markús Sívarsson væri byrjaður með veðlánastarfsemi ásamt Birtu Lind Hallgrímsdóttur, kærustu sinni.
Kristján á langan brotaferil að baki en sagði í samtali við Vísi að allir ættu skilið annað tækifæri. Um væri að ræða hugmynd sem hann hafi gengið með í maganum í nokkurn tíma en ekki verið í standi til að framkvæma fyrr en núna. Veðlánastarfsemi gengur út á að viðskiptavinir láti af hendi verðmæti og ýmist selji þau eða noti sem veð upp í lán.
„Ég hef alltaf verið frekar úrræðagóður. Nú er búið að banna öll okurlán á Íslandi og tæknilega séð ætti þetta að vera ólöglegt. En ég er búinn að finna leið til að gera þetta löglega,“ sagði Kristján.
Aðspurður hvort það væri ekki viðbúið að þjófar myndu reyna að nýta sér starfsemina til að koma þýfi í verð sagðist hann hafa hugsað fyrir því.
„Þegar fólk kemur með hluti til mín tek ég niður nafn og kennitölu. Ég læt það skrifa undir hvaða hlut það kemur með. Ef það kemur í ljós að þetta er þýfi mun það þurfa að taka ábyrgð á því. Allt svoleiðis verður tilkynnt til lögreglu.“
Lítið hefur heyrst af starfsemi Pawnshop undanfarnar vikur og liggur heimasíðan niðri.
Umrót á einum vinsælasta veitingastað borgarinnar
Breytingar eru óhjákvæmilegar í heimi viðskiptanna og eiga stjórnenda- og eigendaskipti sér oft stað við misgóðar viðtökur starfsfólks. Stundum fer allt á versta veg og gæti atburðarásin á veitingastaðnum Snaps við Óðinstorg eflaust reynst sérfræðingum í mannauðsmálum og vinnustaðamenningu verðugt rannsóknarefni.
Í október greindi Vísir frá því að nær allt starfslið staðarins hafi sagt starfi sínu lausu vegna víðtækrar óánægju með stjórnarhætti nýs rekstrarstjóra.
Í lok september sendu alls átta þjónar, vaktstjórar, barþjónar og kokkar inn uppsagnarbréf og hættu um næstu mánaðamót. Laugardaginn 9. október gengu svo þrír þjónar út á miðri vakt og sneru ekki aftur til starfa.
Eftir stóðu alls þrír starfsmenn umrætt laugardagskvöld sem reyndu að þjónusta gesti af veikum mætti en þeirra á meðal var rekstrarstjórinn sjálfur Þórir Helgi Bergsson og starfsmaður sem hafði byrjað sama dag.
Undirmönnunin fór ekki fram hjá gestum veitingahússins og gripu tveir vinir rekstrarstjórans sem voru mættir í mat til þess ráðs að létta undir með starfsfólkinu.
Þórir sagði síðar í samtali við fréttastofu að hann hafi aldrei lent í öðru eins í öllum sínum veitingarekstri. Bað hann viðskiptavini afsökunar á þessari uppákomu en sagði að það starfsfólk sem eftir stæði hafi gert sitt besta við erfiðar aðstæður.
Gulur, rauður, lakkrís og Via Babuino
Getur fólk slegið eign sinni á liti? Segja má að það sé kjarninn í deilum Rutar Káradóttur og Slippfélagsins. Vísir greindi frá því í mars að innanhúshönnuðurinn hafi sakað hönnuð Slippfélagsins um að hafa tekið litakort sitt ófrjálsri hendi og gert að sínu eigin.
Rut sagði þetta til marks um það að höfundarverk væru ekki metin að verðleikum á Íslandi en forsvarsmaður Slippfélagsins og hönnuður kortsins hafna ásökununum.
Litakortin sem um ræðir er kortið Roma sem Rut hannaði fyrir verslunina Sérefni árið 2019 og Ilmur sem var hannað af Sæbjörgu Guðjónsdóttur og gefið út í janúar síðastliðnum.
Litapallettan Roma samanstendur af sex jarðlitum og sagði Rut greinilegt að finna megi fjóra þeirra í litakortinu Ilmi og eilítið ljósari útgáfu af einum lit til viðbótar. Sæbjörg og Slippfélagið gáfu lítið fyrir þessar ásakanir og sögðu jarðliti alltaf vera svipaða.
„Það er enginn af þeim eins en það eru einhverjir svipaðir og það er bara eðlilegt því þetta eru jarðlitir og þeir eru í tísku,“ sagði Baldvin Valdimarsson, framkvæmdastjóri Málningar sem rekur Slippfélagið. Þá bætti hann við að mjög svipaða liti mætti finna í litakorti Slippfélagsins frá árinu 2004. Hann ætli Rut þó ekki að hafa skoðað það áður en hún útbjó Roma um fimmtán árum síðar.
Lögðu allt undir
Annað árið rataði Björn Leifsson og World Class í mest lesnu viðskiptafréttir ársins en í þetta skiptið var það ekki vegna þess að hann var hundfúll með sóttvarnatakmarkanir sem hömluðu starfsemi fyrirtækisins.
Í helgarviðtali Atvinnulífsins ræddu hann og Hafdís Jónsdóttir, hinn eigandi líkamsræktarveldisins og eiginkona Björns, meðal annars hvernig var að vera á milli tannanna á fólki eftir fjármálahrunið og sögu World Class sem er samtvinnuð fjölskyldusögunni.
Einnig greindi dóttirin Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class, frá því þegar hún óttaðist að fjölskyldan myndi flytja í fellihýsi eftir að hjónin lögðu allt undir til að reisa eina stærstu líkamsræktarstöð Evrópu í Laugardalnum.
„Við Dísa ræddum fyrir alvöru hvort að við ættum að hætta í líkamsræktinni og snúa okkur alfarið að skemmtanabransanum. En eftir nokkur ár fattaði ég að skemmtanageirinn er eins og loðnuvertíð, en rekstur líkamsræktarstöðvar mun stöðugri,“ sagði Björn um það þegar hann og Hafdís tóku ákvörðun um að selja tvo af vinsælustu skemmtistöðum borgarinnar laust eftir síðustu aldamót.
Segir Ingó Veðurguð hafa hreinsað sig út úr fyrirtækinu
Fljótlega eftir að kórónuveirufaraldurinn skall á af öllum mætti í lok febrúar á seinasta ári var sótthreinsun og hreinlæti á allra vörum. Athafnamenn sáu sér þar leik á borði og í byrjun þessa árs var tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, kominn í kaf á innflutning á sótthreinsivörum frá X-Mist.
X-Mist komst aftur í fréttir um þremur mánuðum síðar þegar Vísir greindi frá því að Jónas Eiríkur Nordquist hafi stefnt Ingó, Davíð Þór Rúnarssyni og Sævari Eyvinds Helgasyni fyrir að hafa haft af sér innflutninginn með bolabrögðum. Krafðist Jónas að þremenningarnir myndu greiða honum skaða- og miskabætur eftir að þeir færðu viðskiptasambönd frá X-mist ehf. til X-mist Scandinavia ehf. án samráðs við hann og tekið yfir heimasíðuna Xmist.is.
Í stefnunni kemur fram að Jónas hafi ætlað að hefja innflutning á umræddum sótthreinsivörum frá Bretlandi árið 2020 og komið á viðskiptasambandi við skoska félagið X-Mist.
Síðar kaupa Ingólfur, Davíð Þór og Sævar hlut í fyrirtæki Jónasar en eftir deilur stofnuðu þremenningarnir nýtt fyrirtæki og sömdu beint við framleiðandann án aðkomu Jónasar.
Ingólfur sagði í samtali við Vísi í apríl að lýsing Jónasar væri þvættingur og langt í frá sannleikanum samkvæm. Í raun hafi Jónas ekki haft fjárhagslega burði til að vera með í rekstrinum og selt sig út úr honum.
Umvafin hatri eftir stuðningsyfirlýsingu
Umræða um kynferðisafbrotamál var áberandi á árinu sem er senn að líða og hafði hún ekki síður áhrif í viðskiptalífinu. Mál Sölva Tryggvasonar fjölmiðlamanns var eitt af stærstu málum ársins og komst það í hámæli í maí þegar greint var frá því að tvær konur hafi kært Sölva fyrir líkamsárás og kynferðisbrot. Mikill hiti var í umræðunni um málið á samfélagsmiðlum og virkaði það líkt og olía á eld þegar Reynir Bergmann, annar eigandi veitingastaðarins Vefjunnar, tók upp hanskann fyrir Sölva og sagðist vera með honum í liði.
Nokkrum dögum síðar steig Sólveig Ýr Sigurjónsdóttir, barnsmóðir Reynis og eigandi Vefjunnar, fram í færslu á Instagram og sagði að fólk væri búið að dauðadæma fyrirtæki þeirra vegna ummælanna. Hún væri sár og reið út í fólk sem hafi logið upp á veitingastaðinn sem þau hafi lagt mikla vinnu í að byggja upp frá grunni.
„Í þessu þjóðfélagi er gjörsamlega búið að dauðadæma okkur og fyrirtækið okkar á heimasíðum okkar og í persónulegum skilaboðum og eigum við þetta bara alls ekki skilið!! Þetta er bara ALLTOF langt gengið og bið ég ykkur vinsamlegast um að hugsa ykkur tvisvar um áður en þið farið að bulla um slíkt,“ skrifaði Sólveig meðal annars.
Bónus kynnti nýjan grís
Flest fólk er vanafast að eðlisfari og geta breytingar á rótgrónum vörumerkjum oft valdið nokkru fjaðrafoki meðal fastakúnna. Á því var engin undantekning þegar Bónus, stærsta verslunarkeðja landsins, uppfærði útlit hins víðfræga Bónussgríss og breytti leturgerðinni sem notuð er í vörumerki fyrirtækisins. Breytingarnar voru gerðar samhliða lengingu á opnunartíma margra Bónussverslana en nýi grísinn virtist þó vekja mesta athygli landsmanna.
Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus, sagði í samtali við Vísi í nóvember að um tímabærar breytingar væri að ræða en þær væru þó fremur hófsamar.
„Það er verið að trimma hann aðeins til. Þetta er nú ekki mikil breyting. Það voru tekin tvö eða þrjú strik sem manni fannst alltaf að hafi gleymst að stroka út þegar hann var hannaður í upphafi,“ sagði Guðmundur, og vísaði þar í strik á baki gríssins og ofan á nefinu.
„Þetta var sú breyting sem ég samþykkti og fannst næst hinum upprunalega. Það var ákveðið að fara í vinnu með að auðvelda framhaldið í auglýsingum. Þannig höfum verið að laga helling í auglýsingaefninu til að koma því á stafrænt form.“
Netverjar voru ekki á eitt sáttir með breytinguna og sökuðu sumir verslunarkeðjuna um að eyðileggja klassískt myndmerki sem hafði skapað sér sess í þjóðarsálinni.
Er ekki í lagi með fólk eða? Skilja íslendingar gjörsamlega ekkert? Af hverju fær *ekkert* að vera í friði á þessu landi? Hver er tilgangurinn/markmiðið? Taka núansinn, söguna og húmorinn burt, svo bara tóm, generísk skel sitji eftir? pic.twitter.com/xQ87bbNWcK
— Ꙭ (@siggioddss) November 11, 2021
Hvaða sick joke er þetta? Þú tekur ekki eitt mest iconic svín allra tíma og fokkar í því? Hvar er lata augað? Hvaða persónuleikalausi impostor er þetta? Þetta er milljón sinnum meira offensive en swole Klói. pic.twitter.com/ne8Uvw5qOx
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) November 11, 2021
Hér fyrir neðan má svo sjá fleiri viðskiptafréttir sem vöktu athygli lesenda á árinu 2021.