Innlent

Sorpa dæmd til að greiða níu­tíu milljónir vegna út­boðs­klúðurs

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Deilan snerist um útboð á byggingu Gaju, gas- og jarðgerðarstöð Sorpu á Álfsnesi.
Deilan snerist um útboð á byggingu Gaju, gas- og jarðgerðarstöð Sorpu á Álfsnesi. Vísir/Arnar

Sorpa þarf að greiða Íslenskum aðalverktökum 89,4 milljónir vegna útboðsins á byggingu Gaju, gas- og jarðgerðarsstöð Sorpu á Álfsnesi. Héraðsdómur telur Sorpu ekki hafa gætt jafnræðis á milli bjóðenda í verkið.

Málið má rekja til þess að í nóvember árið 2017 bauð Sorpa út verk sem fólst í því að reisa gas- og jarðgerðastöð á Álfsnesi, Gaju.

Fjögur tilboð bárust í verkið, þar á meðal frá Íslenskum aðalverktökum. Tilboðin fjögur voru öll tíu prósent yfir kostnaðaráætlun og var þeim hafnað.

Ákvað Sorpa þá að hefja samningskaupaferli við þá bjóðendur sem uppfylltu fjárhagslegar og tæknilegar kröfur til verksins.

Munaði 33 milljónum

Þrjú fyrirtæki tóku þátt í ferlinu og endaði Sorpa á að taka tilboði Ístaks sem var lægst, sem hljóðaði upp á fjóra milljarða og 116 milljónir.

Íslenskir aðalverktakar vildu byggja stöðina, en Ístak var valið fram yfir.Vísir/Arnar

Tilboð Íslenskra aðalverktaka var fjórir milljarðar og 149 milljónir króna. Mismunurinn á tilboðunum var 33,4 milljónir króna.

Íslenskir aðalverktakar bentu hins vegar á að tilboð Ístaks fæli hvorki í sér einangrun í þök á hluta byggingarinnar né að steypa uppfyllti ákveðin áreitisflokk, þrátt fyrir að útboðsgögnin mæltu fyrir um hvort tveggja.

Töldu Sorpu ekki hafa lagt mat á virði tilboðanna

Samkvæmt matsgerð sem Íslenskir aðalverktakar lögðu fram var kostnaður við þetta metinn á 48 milljónir. Hefði þessari upphæð verið bætt við tilboð Ístaks, hefði tilboð Íslenskra aðalverktaka verið lægra.

Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að þetta gæfi til kynna að röð tilboða hefði breyst, hefði þessi upphæð verið tekin með í reikninginn.

Í Gaju fer fram endurvinnsla á forflokkuðum lífrænum heimilisúrgangi í moltu og metan.Vísir/Vilhelm

Sorpa hafi ekki gert neina tilraun til þess að leggja mat á virði frávika frá útboðslýsingu Telur héraðsdómur að það hafi falið í sér brot á meginreglu um jafnræði bjóðenda þar sem Sorpa hafi tekið tilboð Ístaks þrátt fyrir að tilboð væri ekki samanburðarhæft við tilboð Íslenskra aðalverktaka.

Íslenskir aðalverktakar vildu 190 milljónir

Taldi Héraðsdómur að sýnt hafi verið fram á að Íslenskir aðalverktakar hefðu fengið verkið ef slíkur samburður hefði farið fram.

Íslenskir aðalverktakar kröfðust þess að Sorpa myndi greiða 189,5 milljónir vegna málsins, sem væri sá hagnaður sem félagið hafi orðið af við að fá verkinu ekki úthlutað.

Í dómi sínum miðaði héraðsdómur við mat matsmanns sem taldi glataðan hagnað vera 88,5 milljónir króna, en alls var Sorpa dæmd til að greiða 89,4 milljónir vegna málsins, auk sex milljóna í málskostnað.


Tengdar fréttir

Moltugerð í Gaju stöðvuð tímabundið vegna myglu

Fullvinnsla á lífrænum úrgangi í moltu í Gaju, gas- og jarðgerðarstöð SORPU, var stöðvuð tímabundið eftir að myglugró fundust í þaki og burðarvirki hennar í ágúst. SORPA ætlar að hækka gjaldskrár sínar til að standa undir kostnaði við að flytja úrgang úr landi til brennslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×