443 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær Atli Ísleifsson skrifar 23. desember 2021 10:58 Aldrei áður hafa svo margir greinst með kórónuveiruna á einum sólarhring hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar 2020. Vísir/Vilhelm 443 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Aldrei áður hafa svo margir greinst með kórónuveiruna hér á landi á einum sólarhring frá upphafi faraldursins.
293 af þeim 443 sem greindust innanlands í gær voru utan sóttkvíar við greiningu, eða 66 prósent. 150 voru í sóttkvíar, eða 34 prósent. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að um sjötíu prósent smitaðra hafi greinst með ómíkronafbrigði veirunnar. Þetta kemur fram á síðunni covid.is. 2.622 eru nú í einangrun vegna Covid-19 samanborið við 2.259 í gær. 3.159 eru nú í sóttkví, en voru 3.301 í gær. 456 eru nú í skimunarsóttkví. Á vef Landspítalans segir að níu sjúklingar liggi nú inni á Landspítala vegna COVID-19. Meðalaldur inniliggjandi er 68 ár. Þrír eru á gjörgæslu, allir í öndunarvél. Fimmtíu greindist á landamærunum í gær – fjörutíu virk smit í fyrri landamæraskimun og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilviki tíu. Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 735,5, en var 655,3 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 67,7 samanborið við 57,3 í gær. Alls hafa 22.087 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 37 andlát verið rakin til COVID-19 hér á landi frá upphafi faraldursins. Alls voru tekin 2.864 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá var 1.835 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 989 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun. Þá voru 232 sýni tekin í skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Bjarni gefur ekki kost á sér og afsalar sér þingsæti Innlent Bjarni farsæll en hefur alltaf átt sér óvildarmenn Innlent Bandaríkin ein ástæða þess að Íslendingar eru eftirbátar Norðurlandanna Innlent Peningadeilur Fjólu og Eddu á dagskrá dómstóla Innlent Tugir svekktra barna þurftu að snúa við á Kjalarnesi Innlent Sætta sig ekki við neitt annað en að húsið verði rifið Innlent Hver tekur við af Bjarna? Þetta eru nöfnin sem oftast eru nefnd Innlent Sagður hafa þegið töskur fullar fjár frá Gaddafi Erlent Vildi aðstoð lögreglu við að fá vinninginn afhentan Innlent Þrír ráðuneytisstjórar fluttir til í starfi Innlent Fleiri fréttir Ýmsar ívilnanir til handa læknum á landsbyggðinni í skoðun Eldur í „flugeldagámi“ við Klambratún Má heita Amína en ekki Hó Aldrei verið skráð fleiri manndrápsmál Brýnt að bregðast hratt við vanda í orkumálum Bjarni farsæll en hefur alltaf átt sér óvildarmenn Viðbrögð við ákvörðun Bjarna og þrettándabrennur Hver tekur við af Bjarna? Þetta eru nöfnin sem oftast eru nefnd Eyjólfur réði aðstoðarmenn úr kosningateymi flokksins „Hann treysti mér fyrir stórum verkefnum og tækifærum“ Neitar sök í manndrápsmálinu í Neskaupstað Ekki búinn að taka ákvörðun um formannsframboð Tár féllu þegar Bjarni sagði þingflokknum frá ákvörðun sinni Tekur sætið og útilokar ekki formannsframboð „Helsti valdamaður landsins í meira en áratug“ Peningadeilur Fjólu og Eddu á dagskrá dómstóla Dagurinn eigi að snúast um ákvörðun Bjarna Allir sem hafi íhugað formannsframboð hljóti að gera það í dag Jón Gunnarsson kemur inn við brotthvarf Bjarna Hildur áfram þingflokksformaður Bjarni gefur ekki kost á sér og afsalar sér þingsæti Fjögur mál til landskjörstjórnar vegna alþingiskosninganna Lárus bætist í hóp aðstoðarmanna ráðherra Grái herinn fær áheyrn í Strassborg Veður gæti haft áhrif á brennuhald Vigdís á allra vörum og nýtt námskeið kynnt til sögunnar Tugir svekktra barna þurftu að snúa við á Kjalarnesi Landskjörstjórn ætlar að skila í næstu viku Þrír ráðuneytisstjórar fluttir til í starfi Sætta sig ekki við neitt annað en að húsið verði rifið Sjá meira