Ef skoðaðar eru lestrartölur Vísis fyrir beinu útsendinguna er ljóst að áhugi lesenda á vindmyllunni er mikill, og eykst raunar með hverri tilraun sem gerð er til þess að ná henni niður. Þegar þetta er skrifað hafa verið gerðar fimm tilraunir til þess að sprengja vindmylluna niður, og sú sjötta er í bígerð.
Netverjar hafa ekki látið sitt eftir liggja, og hafa íslenskir Twitter-notendur margir hverjir lýst ánægju sinni með festu myllunnar, sem lætur tilræði sprengjusveitarinnar ekkert á sig fá. Á sama tíma tala aðrir um mest spennandi sjónvarpsefni í heimi.
Bíókvöld framundan #vindmyllan pic.twitter.com/rCo1HVVkas
— 𝚁 𝙰 𝙶 𝙶 𝙰 🦋 (@raggaj89) January 4, 2022
Vindmyllan í Þykkvabæ er táknmyndin sem ég þurfti í dag.
— Ólöf Hugrún (@olofhugrun) January 4, 2022
Allir lúserar landsins mættir til að fella hana og hún er bara: "EKKI Í DAG, SATAN, ÉG STEND ÞETTA AF MÉR." 😤
Látum ekki eins og þetta sé ekki skemmtilegasta verkefni sem þessir gæjar frá Landhelgisgæslunni hafa nokkru sinni fengið í vinnunni. Ég er bara fjölmiðlakona og myndi samt elska að eyða 6 tímum í að sprengja risastórt mastur #vindmyllan
— Snærós Sindradóttir (@SnaerosSindra) January 4, 2022
Fimmta sprengingin coming up. Aldrei haldið jafn mikið með neinu og þessari vindmyllu #vindmyllan
— Þórunn Ólafsdóttir (@Thorunnolafsd) January 4, 2022
Vindmyllan sem stendur enn eftir tvö sprengjutilræði í dag er táknmynd íslensku þjóðarsálarinnar. Höldum áfram á hnefanum löngu eftir að við ættum að vera fallin. pic.twitter.com/5S3WjwtjXS
— Sindri Geir (@sindrigeir) January 4, 2022
Ef við höfum lært eitthvað af cóvid þá er það að það munu sennilega rísa 2-3 nýjar vindmyllur þarna áður en þessum sérfræðingum tekst að ná niður þessari #vindmyllan
— Kamilla Einarsdóttir (@Kamillae) January 4, 2022
Þessi úrvinda, tvísprengda, uppbrunna vindmylla þarf skyndifriðun. Minnismerkið um íslensku þrjóskuna.
— Bragi Valdimar (@BragiValdimar) January 4, 2022
„Pabbi, við erum svangir!“
— Haukur Viðar (@hvalfredsson) January 4, 2022
„Svekkjandi. Ég elda ekki örðu af mat fyrr en þessi gamla vindmylla í Þykkvabæ fellur.“
Ég vil láta smíða hús fyrir mig úr sama efni og þessi vindmylla! #Vindmyllan
— Ásmundur Sveinsson (@asi_disko) January 4, 2022
Þetta heppnast klárlega í fyrstu tilraun eftir tilraun 12 #vindmyllan
— Ulfar Thordarson (@U_goatskin) January 4, 2022
Þetta vindmyllustream er eitt mest spennandi sjónvarpsefni sem ég hef horft á lengi.
— Jón Bjarni (@jonbjarni14) January 4, 2022
kannski er orðið tímabært að við lærum að lifa með vindmyllunni
— Atli Fannar (@atlifannar) January 4, 2022
Það gerist jafn mikið í þessari vindmylluútsendingu og Ófærð 3
— Katrín Atladóttir (@katrinat) January 4, 2022
Þýskar vörur eru einfaldlega yfirburðar. Siemens, AEG, Adidas, Bosch, BMW, Carl Zeiss AG, Vindmyllan...
— Björn Teitsson (@bjornteits) January 4, 2022
Það er 4. jan og við erum strax komin með efni fyrir næsta skaup með þessari vindmyllu
— Jóhannes Birkir (@JohannesBirkir) January 4, 2022
Erum við búin að prófa að syngja vindmylluna burt?
— Vilhelm Neto (@VilhelmNeto) January 4, 2022
#vindmyllan fellur í
— Halldór Jörgensson (@halldorj) January 4, 2022
Hér að neðan má finna fréttavakt og beina útsendingu frá aðgerðum á vettvangi.