Lífið

Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda

Boði Logason skrifar
Berglind Alda Ástþórsdóttir, Saga Garðarsdóttir, ???, Jón Jónsson og Auðunn Blöndal.
Berglind Alda Ástþórsdóttir, Saga Garðarsdóttir, ???, Jón Jónsson og Auðunn Blöndal. Sýn

Saga Garðarsdóttir, leikkona og uppistandari, og Jón Jónsson, einn vinsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, verða í hópi keppenda í nýrri þáttaröð af Taskmaster Ísland sem sýnd verður á Sýn+ í vor.

Greint var frá því í gær að Berglind Alda Ástþórsdóttir, leikkona og þáttastjórnandi, og Auðunn Blöndal, sjónvarpsmaður, leikari og veitingamaður, yrðu einnig í hópi keppenda, en hulunni verður svipt af fimmta og síðasta keppandanum hér á Vísi á morgun.

Saga Garðarsdóttir er ein af eftirsóttustu leikkonum og uppistöndurum þjóðarinnar. Hún kom fyrst fram á sjónarsviðið í Steindanum okkar og hefur síðan leikið í sjónvarpsþáttum á borð við Aftureldingu, Steypustöðina og Stellu Blómkvist. Hún hlaut Edduverðlaun sem leikkona ársins í aðalhlutverki árið 2026 fyrir kvikmyndina Ástina sem eftir er.

Jón Jónsson hefur um árabil verið einn vinsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar. Síðustu ár hefur hann gert allt vitlaust ásamt fóstbræðrum sínum í IceGuys, en hann hefur einnig getið sér gott orð sem sjónvarpsmaður og skemmtikraftur. Hann hefur meðal annars verið dómari í Ísland Got Talent og stýrt Fjörskyldunni, auk þess að hafa haslað sér völl sem uppistandari.

Tökur á nýrri þáttaröð hófust fyrr í þessum mánuði, en Ari Eldjárn og Jóhann Alfreð Kristjánsson munu þar snúa aftur sem stjórnendur þáttanna. Hægt er að horfa á fyrstu þáttaröðina á streymisveitunni Sýn+ og í opinni dagskrá á Sýn.

Í Taskmaster Ísland mæta fimm íslenskir skemmtikraftar og grínistar til leiks og keppa í óvæntum og oft furðulegum þrautum sem krefjast útsjónarsemi, hugmyndaauðgi og húmors. Allt er þetta gert í nafni heiðurs og hláturs en einnig til að finna út hver verður hinn eini sanni þrautakóngur þáttaraðarinnar.


Tengdar fréttir

Berg­lind Alda og Auddi keppa í Taskma­ster

Berglind Alda Ástþórsdóttir, leikkona og þáttastjórnandi, og Auðunn Blöndal, sjónvarpsmaður, leikari og veitingamaður, verða í hópi keppenda í Taskmaster Ísland sem verður á dagskrá Sýnar+ næsta vor.

Taskmaster Ísland snýr aftur

Taskmaster Ísland mun snúa aftur á Sýn+ næsta vor en tökur á nýrri þáttaröð hófust fyrr í þessum mánuði. Ari Eldjárn og Jóhann Alfreð Kristjánsson munu snúa aftur sem stjórnendur þáttanna en keppendur verða kynntir til leiks hér á Vísi á næstu dögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.