Þar kemur hann til með að stýra samskiptum og kynningarmálum. Þetta herma heimildir Innherja.
Carbfix er fyrirtæki sem var stofnað með það að markmiði að sýna samfélagsábyrgð í verki með því að stórauka kolefnisförgun hér á landi og erlendis. Carbfix hefur þróað nýja tækni, sem vakið hefur heimsathygli, til að binda kolefni varanlega í jarðvegi með því að umbreyta því í steinefni. Nýlega var meðal annars tilkynnt um samstarf fyrirtækisins við Rio Tinto um viðamikið verkefni á þessu sviði í Straumsvík.
Ólafur Teitur var fréttamaður árin 1998 til 2007, fyrst hjá RÚV, þá DV og svo Viðskiptablaðinu. Hann var fjölmiðlafulltrúi Straums-Burðaráss fjárfestingabanka 2008 og svo ráðinn framkvæmdastjóri samskiptasviðs Rio Tinto á Íslandi hf., sem rekur álverið í Straumsvík.
Hann var svo ráðinn aðstoðarmaður Þórdísar í ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu. Þá var hann var í stjórn Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð, frá stofnun 2011 og til ársins 2015.
Klinkið er vettvangur Innherja þar sem dregin er upp mynd og veitt innsýn í bakherbergi viðskipta, stjórnmála og atvinnulífs á landinu.